Fara í efni
Fréttir

Sannfærandi sigur Þórs/KA á Víkingi

Sonja Björg Sigurðardóttir gerði þriðja mark Þórs/KA á 62. mínútu eftir að markvörður Víkings varði fast skot Söndru Maríu Jessen. Gleði markaskorarans leynir sér ekki og heldur ekki gleði Söndru Maríu þótt hún snúi baki í ljósmyndarann! Mynd: Ármann Hinrik

Þór/KA vann mjög sannfærandi 4:1 sigur á Víkingi í Boganum í gær í 10. umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu, efstu deildar Íslandsmótsins. Liðið er í fjórða sæti með 18 stig, fjórum á eftir FH sem er í þriðja sæti, og nú verður gert rúmlega mánaðar langt hlé á deildinni vegna þátttöku Íslands í Evrópukeppninni í Sviss.

Sandra María Jessen, fyrirliði Þórs/KA, verður í eldlínunni í Sviss og óhætt að segja að hún haldi vel stemmd til móts við samherja sína í landsliðinu. Sandra gerði eitt mark í gær og átti stóran þátt í tveimur. En hún var aldeilis ekki sú eina sem lék vel; „Stelpurnar okkar“ höfðu virkað þreytulegar í þremur tapleikjum í röð – tveimur í deild og þeim þriðja í bikarkeppninni – en mættu sprækar til leiks í gær og buðu upp á skemmtilegan leik. 

Víkingsliðið er vissulega lakari andstæðingur en Þróttur, FH og Breiðablik en ekki er sjálfgefið að sigra þrátt fyrir það. Nú voru leikmenn  Þórs/KA öryggið uppmálað, kraftmiklir og liðsheildin til fyrirmyndar.

Ármann Hinrik var í Boganum í gær og býður upp á þessa glæsilegu myndaveislu.

 

100 leikir! Birgir Örn Reynisson, stjórnarmaður Þórs/KA, afhenti Agnesi Birtu Stefánsdóttur fallega treyju að gjöf fyrir leikinn í gær í tilefni þess að það var 100. leikur hennar með liðinu í deild og bikarkeppni.

Öflugir nýstúdentar

Vert er að nefna sérstaklega framherjann hávaxna, Sonju Björgu Sigurðardóttur; frammistaða hennar í gær hlytur að vera sú besta í sumar. Mikið býr í henni, erfið meiðsli gerðu Sonju erfitt fyrir á tímabili en nú virðist kominn tími á að hún blómstri. Sonja útskrifaðist sem stúdent frá MA 17. júní og hélt upp á það með stæl í gær.

Amalía Árnadóttir, sem setti líka upp hvíta MA-kollinn á þjóðhátíðardaginn, hefur minnt rækilega á sig undanfarið og hélt uppteknum hætti gegn Víkingi. Kraftmikill og áræðinn leikmaður sem skoraði í gær og gaman er að sjá systurnar, hana og Margréti, saman á miðjunni. Margrét er feykilega góður leikmaður og mikilvægur hlekkur í liðinu. Fleiri mætti vitaskuld nefna og jafnvel allar; dæmi: Hulda Ósk Jónsdóttir kom inn í byrjunarliðið á ný og var fersk, Agnes Birta Stefánsdóttir var öflug í vörninni þótt hún sé að sögn tæp vegna meiðsla, hún gerði fyrsta mark leiksins og hefði með smá heppni getað skorað þrjú. Agnes hafði þar til í gær gert tvö mörk í 68 leikjum á Íslandsmótinu!

 

AGNES BIRTA SKORAR
Bæði lið fengu góð tækifæri til að skora snemma leiks en það var Agnes Birta Stefánsdóttir (lengst til vinstri á myndunum, númer 19) sem braut ísinn á 28. mín. Eftir hornspyrnu Karenar Maríu var hart barist í vítateignum en Agnes var grimmust og hamraði boltann upp í þaknetið. Agnes hafði skorað tvö mörk í efstu deild fyrir leikinn, það fyrra 2019 og hún gerði eitt mark í fyrrasumar en hefði – með smá heppni – getað gert þrjú mörk í gær!


_ _ _

VÍKINGUR JAFNAR
Gestirnir jöfnuðu undir lok fyrri hálfleiks. Dagný Rún Pétursdóttir var þar að verki; fékk langa, góða sendingu frá Lindu Líf Boama af hægri kantinum, og skoraði undir Jessicu markvörð Þórs/KA.


_ _ _

FRÁBÆR BYRJUN
Fyrsta mínúta seinni hálfleiksins var draumi líkust hjá Þór/KA. Hulda Ósk Jónsdóttir fékk boltann út á hægri kant, föst sending hennar inn í vítateig var frábær, Sandra María þrumaði boltanum í þverslá, þaðan sveif hann upp í loftið og Amalía Árnadóttir (númer 7) var ákveðnust allra þegar boltinn kom niður á ný og skoraði með hörkuskalla. Þá var ekki nema hálf mínúta liðin síðan dómarinn flautaði til leiks, leikmenn Þórs/KA og stuðningsmenn liðsins glöddust eðlilega mjög, og Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari brosti hringinn!


_ _ _

VERÐSKULDAÐ MARK SONJU
Þór/KA komst í 3:1 á 62. mínútu. Sigurborg í marki Víkings varði hörkuskot Söndru Maríu Jessen úr miðjum vítateig, Sonja Björg Sigurðardóttir náði frákastinu og skoraði örugglega af stuttu færi. Þetta er annað mark Sonju í Bestu deildinni, það fyrra gerði hún í sigri á FHL í Fjarðabyggðarhöllinni í maí.


_ _ _

OG SANDRA, AÐ SJÁLFSÖGÐU ...
Það var vel við hæfi að Sandra María Jessen skyldi gulltryggja sanngjarnan sigur Þórs/KA í gær. Það var á 67. mínútu að Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir sendi fyrir markið af hægri kanti, Sigurborg markvörð náði ekki boltanum og Sandra var við öllu búin í markteignum. Skallaði boltann í markið og þar með ballið í raun búið ...

Leikskýrslan

Staðan í deildinni