Fara í efni
Fréttir

KA dæmt til að greiða Arnari 12,3 milljónir

Arnar Grétarsson, þá þjálfari Vals, á Greifavelli KA 2. júlí 2024, þegar KA vann 3:2 og tryggði sér sæti í úrslitaleik bikarkeppninnar. Þetta var í síðasta skipti sem Arnar stjórnaði liði á KA-vellinum því honum var sagt upp hjá Val mánuði síðar. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Landsréttur dæmdi í dag Knattspyrnufélag Akureyrar (KA) til að greiða Arnari Grétarssyni, fyrrverandi þjálfara knattspyrnuliðs félagsins, 9,3 milljónir króna ásamt dráttarvöxtum frá 5. nóvember 2023. Að auki er KA gert að greiða Arnari 3 milljónir króna í málskostnað.

Arnar þjálfaði KA frá miðju sumri árið 2020 þar til um miðjan september 2022 þegar „KA afþakkaði vinnuframlag“ hans, eins og það er orðað í dómi Landsréttar, samningi hans var ekki rift og Arnar fékk greidd laun þar til samningurinn rann út 31. október sama ár. Arnar höfðaði mál gegn KA þar sem hann taldi sig eiga inni bónusgreiðslur frá félaginu vegna þátttöku KA í Evrópukeppninni sumarið 2023.

Í maí á síðasta ári dæmdi Héraðsdómur Norðurlands eystra Arnari í hag í málinu. KA áfrýjaði niðurstöðunni til Landsréttar og dómurinn í dag er endanlegur.

Arnar var ekki lengur við störf hjá KA þegar liðið tryggði sér þátttökurétt í Evrópukeppninni en niðurstaða beggja dómsstiga er að það skipti ekki máli. KA „afþakkaði vinnuframlag“ hans eftir að hefðbundinni 22 leikja deildarkeppni lauk, áður en fimm leikja framhaldskeppni sex efstu liða deildarinnar hófst.

Í útdrætti dóms Landsréttar í dag segir:

„Ágreiningur málsins laut að túlkun samningsákvæðis um að [Arnar] fengi 10% af allri þeirri upphæð sem KA fengi greitt frá UEFA vegna þátttöku í Evrópukeppni. Sagði þar að ákvæðið ætti eingöngu við um það fjármagn sem væri vegna leikjanna en næði ekki til ferðagreiðslna eða þeirra greiðslna sem væru óháðar leikjum í Evrópukeppni. KA afþakkaði vinnuframlag [Arnars] eftir 17. september 2022. Ágreiningslaust var að samningnum var ekki rift og að hann rann sitt skeið 31. október 2022 en [Arnar] fékk greidd laun út þann tíma. Í dómi Landsréttar var fallist á með héraðsdómi að [Arnar] hefði verið þjálfari liðsins samkvæmt samningi er liðið vann sér inn þátttökurétt í Evrópukeppninni, þótt vinnuframlag hans hefði verið afþakkað. Einhliða ákvörðun KA um að afþakka vinnuframlag [Arnars] í síðustu 5 leikjum tímabilsins gæti ekki fellt niður rétt hans til árangursgreiðslu samkvæmt samningnum. Landsréttur taldi ekki verða ráðið af gögnum málsins að KA hefði fengið sérstakar greiðslur frá UEFA til að standa straum af ferðakostnaði og átti [Arnar] því rétt til 10% af þeirri heildarfjárhæð sem KA fékk greitt fyrir þátttökuna, að frádregnum ferðakostnaði félagsins. Loks var greiðslan talin launagreiðsla og reiknaðist því orlof ofan á greiðsluna sem [Arnar] átti rétt á. Var KA því dæmt til að greiða [Arnari] 9.322.601 krónu ásamt dráttarvöxtum.“

Dómur Landsréttar