Fara í efni
Fréttir

Persónulegar forvarnir gegn mávunum bestar

Gunnar Már Gunnarsson, forseti bæjarstjórnar, notar persónulegar forvarnir á borð við hatt á höfði gegn mávunum á Ráðhústorgi. Mynd: Skjáskot af RÚV.is

Mávar hafa verið að gera gestum á Ráðhústorginu á Akureyri lífið leitt í sumar. Þeir eru heimtufrekir og fljótir að grípa mat frá gestum gefist færi á því. 

Fréttastofa RÚV greindi frá vandanum en þar kom fram að möguleg lausn væri að setja lok á ruslatunnurnar við torgið. Samkvæmt upplýsingum RÚV stendur þó ekki til hjá bænum að breyta tunnunum. 

„Auðvitað má alltaf skoða að skipta þeim út en við viljum að aðgengið sé gott. Það er þá best að vertarnir séu með tunnur sjálfir og passi upp á sitt nærumhverfi og við séum með í liði gestir og gangandi,“ segir Gunnar Már Gunnarsson, forseti bæjarstjórnar. Hann benti á að persónulegar forvarnir skipti einnig máli en sjálfur er hann gjarnan með hatt á torginu til að halda mávunum í burtu.  Frétt RÚV má sjá í heild sinni HÉR

Akureyri.net fjallaði um mávapláguna í fyrra sumar og ráðstafanir sem Kaffi Ilmur hafði gert til að berjast við þá. 

Til gamans má geta þess að einn af blaðamönnum akureyri.net varð vitni að matarþjófnaði mávs þegar einn gestur sem sat á útipalli og var einn á ferð brá sér inn fyrir til að sækja sér hnífapör. Gesturinn var varla fjarverandi frá borðinu í meira en 10-15 sekúndur, en það var nóg fyrir mávinn sem sveif að borðinu og nartaði í góðan laxabita sem umræddur gestur hafði hugsað sér að snæða.

Á Facebook-síðu Græna hattsins í Hafnarstræti er spurt: Af hverju er ekki sett upp skilti þar sem stendur að það sè bannað að gefa fuglunum? Með spurningunni fylgir þessi mynd frá Ráðhústorginu:

Mynd: Græni hatturinn.