Fara í efni
Fréttir

Othello-slagurinn og fleiri þorskastríðssögur

Dr. Guðni Th. Jóhannesson heldur í dag erindi á Minjasafninu á Akureyri, um Othello-slaginn á Akureyri og aðrar þorskastríðssögur.

Dr. Guðni Th. Jóhannesson, prófessor við Háskóla Íslands og fv. forseti Íslands, heldur í dag erindið Othello-slagurinn á Akureyri og aðrar þorskastríðssögur sem læra má af ef vilji er fyrir hendi, í Minjasafninu á Akureyri.

Viðburðurinn markar upphaf fyrirlestraraðar um sagnfræði – Fortíðin í nýju ljósi – sem verður á safninu þrjá fimmtudaga í þessum mánuði og aðra þrjá í mars. Fyrirlesturinn hefst kl. 17.00 og gert er ráð fyrir að viðburðurinn standi í eina klukkustund. Aðgangur er ókeypis.

Hiti í Íslendingum

„Árla morguns hinn 14. maí 1973 lagðist breska eftirlitsskipið Othello að bryggju á Akureyri. Sumarið áður hafði fiskveiðilögsaga Íslands verið færð út í 50 sjómílur en Bretar neituðu að viðurkenna nýju línuna og hafði því komið til átaka á miðunum,“ segir í kynningu á fyrirlestri Guðna. „Hiti var í Íslendingum og það sýndi sig þennan dag í höfuðstað Norðurlands. Í erindinu verður rás viðburða rakin og komið víða við, ekki aðeins niðri á höfn heldur einnig í Ísbúðinni, Kjötiðnaðarstöðinni, lögreglustöðinni og síðast en ekki síst á sal menntaskólans. Að lokum verður rætt hvaða lærdóm megi draga af „Othello-slagnum“ og öðrum þáttum í þorskastríðssögu okkar Íslendinga.“