Oddfellow konur gáfu flotbúnað í sundlaug
Oddfellow konur í Rebekkustúku nr. 16, Laufeyju, færðu nýverið sjúkraþjálfun á endurhæfingardeild Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) veglega gjöf, flotbúnað til notkunar í sundlauginni á Kristnesi.
„Með gjöfinni hefur aðstaða til flotmeðferðar tekið stórstígum framförum, en sundlaugin býr nú yfir flotbúnaði fyrir allt að tíu einstaklinga í senn. Þetta skapar ný og fjölbreytt tækifæri í endurhæfingu, bæði fyrir einstaklingsmeðferðir og samflot, þar sem áhersla er lögð á djúpslökun, líkamsvitund og andlega vellíðan,“ segir Sólveig Bennýjar og Haraldsdóttir, aðstoðarmaður sjúkraþjálfara í tilkynningu á vef SAk.
Hugmyndin að gjöfinni kviknaði þegar Ester Gestsdóttir dvaldi í endurhæfingu á Kristnesi í janúar 2026, segir í tilkynningunni. „Hún sá þá möguleika á að efla þessa meðferð, þar sem einungis eitt sett af flotbúnaði var til staðar. Í framhaldi lagði hún hugmyndina fyrir stúku sína sem brást afar vel við.“ Það voru Ester og Ragnheiður Sveinsdóttir sem komu í Kristnes og afhentu búnaðinn við hátíðlega athöfn.
„Jafnframt er vert að nefna að Sólveig Bennýjar og Haraldsdóttir, aðstoðarmaður sjúkraþjálfara og jógakennari við deildina, hefur lokið námi í flotleiðsögn hjá Flothettunni í Reykjavík. Sú þekking mun styðja enn frekar við faglega þróun flotmeðferðar á staðnum,“ segir á vef SAk.
„Gjöfin mun nýtast fjölbreyttum hópi skjólstæðinga og styrkja bæði líkamlega og andlega endurhæfingu þeirra sem nýta sér þjónustu deildarinnar,“ er haft eftir Sólveigu Bennýjar og Haraldsdóttur.