Fara í efni
Fréttir

Nokkur félög sögð vilja kaupa Brynjar

Brynjar Ingi Bjarnason áður en hann samdi við Lecce í sumar. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Þrjú félög í Noregi og tvö í Svíþjóð eru sögð áhugasöm um að kaupa knattspyrnumanninn Brynjar Inga Bjarnason frá Lecce á Ítalíu. Fótboltvefurinn fotbolti.net fullyrðir þetta í kvöld.

Rosenborg hefur gert Lecce tilboð í Brynjar og Ítalirnir hafa þegar samþykkt það, að sögn fjölmiðilsins. Hin norsku félögin eru, skv. fotbolti.net,  Vålerenga og Bodö/Glimt, sem á dögunum varð Noregsmeistari annað árið í röð og sænsku liðin sem sögð eru hafa áhuga á Brynjari eru Hammarby og nýkrýndir meistarar í Malmö.

Nánar hér á fotbolti.net