Fara í efni
Fréttir

Langódýrast að æfa handbolta á Akureyri

Sigurreifir Þórsarar úr 4. flokki í keppnisferð á höfuðborgarsvæðinu í desember sl. en hvergi er ódýrara að æfa handbolta en hjá Þór. Mynd: Facebook-síða Þórs.

Það getur munað tugum þúsunda króna á ári hvað foreldrar greiða fyrir handbolta barna sinna, eftir því hjá hvaða félagi þau æfa, en ódýrast er að æfa hjá Þór og KA. Þetta kemur fram í samanburði Alþýðusambands Íslands (ASÍ) á æfingagjöldum barna í handbolta og körfubolta.

Akureyrarfélögin Þór og KA skera sig nokkuð úr en Þór er með lægstu æfingagjöldin í öllum þremur aldurshópunum sem skoðaðir voru, 6-7 ára, 10-11 ára og 14-15 ára. KA er í öðru sæti í öllum þremur hópunum og Akureyrarfélögin eru áberandi ódýrari en flest önnur félög í samanburðinum.

  • Hjá 6-7 ára börnum er ársgjaldið hjá Þór 69.000 krónur og hjá KA 72.000 krónur. Til samanburðar er hæsta gjaldið í þessum aldurshópi 112.500 krónur hjá Fram eða 43.500 krónum hærra en hjá Þór.
  • Þegar komið er í 10-11 ára flokkinn er gjaldið hjá Þór 85.000 krónur og 86.000 krónur hjá KA. Hjá Fram er gjaldið hins vegar 161.650 krónur, eða 76.650 krónum hærra en hjá Þór. Foreldrar 10-11 ára barns greiða því 90% meira fyrir handboltann hjá Fram en hjá Þór, samkvæmt samanburði ASÍ.
  • Munurinn er einnig mikill hjá 14-15 ára börnum. Þar kostar árið 105.000 krónur hjá Þór og 112.000 krónur hjá KA. Hæsta gjaldið í samanburðinum er hjá Fjölni, 176.060 krónur, en HK kemur þar skammt á eftir með 175.000 krónur. Þannig munar 71.060 krónum á lægsta og hæsta gjaldinu í þessum aldurshópi.

Samanburður á ársiðgjaldi í handbolta fyrir 14-15 ára börn. Þór og KA eru með áberandi lægstu gjöldin, rétt eins og í öðrum aldursflokkum sem bornir voru saman. Myndrit: ASÍ.

Töluverður munur innan Reykjavíkur

ASÍ bendir jafnframt á að mikill munur geti verið á æfingagjöldum innan sama sveitarfélags. Í Reykjavík kostar handbolti fyrir 10–11 ára barn til dæmis 105.000 krónur hjá Fylki en 161.650 krónur hjá Fram, sem er 56.650 króna munur.

Frístundastyrkir sveitarfélaga geta lækkað þann kostnað sem foreldrar greiða, en ASÍ bendir á að þeir dugi mislangt eftir félagi og búsetu. Á Akureyri er frístundastyrkurinn 60.000 krónur á ári fyrir hvert barn. Styrkupphæðinni er hægt er að skipta á milli íþrótta- og tómstundagreina ef greiða þarf gjöld fyrir iðkun barns á fleiri en einum vettvangi. Bæði Þór og KA veita líka systkinaafslátt.