Fara í efni
Fréttir

Minnisvarðinn er kominn á sinn stað

Myndir: Hilmar Friðjónsson

Minnisvarði um síðutogara og síðutogarasjómenn, sem akureyri.net hefur fjallað reglulega um síðustu misseri, verður afhjúpaður á sunnudaginn kemur – á sjómannadaginn.

Eftir miklar vangaveltur var minnisvarðanum valinn staður norðan við athafnasvæði siglingaklúbbsins Nökkva við Höepfnersbryggju sem kölluð var. Minnisvarðinn var fluttur á staðinn í gærmorgun og komið fyrir austan göngustígsins við Drottningarbraut. Nokkrir gamlir sjómenn mættu á staðinn til að stilla gripinn af og ganga frá í kringum hann. Hilmar Friðjónsson mætti einnig á staðinn, vopnaður myndavél að vanda.