Fara í efni
Fréttir

Margskonar kúnstir á Flugdaginn – MYNDIR

Mynd: Þorgeir Baldursson

Hátt í 2000 manns lögðu sína í Flugsafn Íslands á Akureyrarflugvelli á laugardaginn þegar safnið hélt árlegan Flugdag. Þar er jafnan mikið um dýrðir, margskonar flugvélar til sýnis og flugmenn sem bjóða upp á alls kyns „loftfimleika“.

Logi Einarsson, menningarráðherra, setti Flugdaginn og þrátt fyrir að veðrið væri ekki í spariskapi tókst dagurinn mjög vel. Fulltrúar Landhelgisgæslunnar sem ætluðu að fjalla um Gæsluna í tilefni 100 ára afmælis hennar í sumar  forfölluðust reyndar svo ekkert varð af því en nóg var um að vera þrátt fyrir það.