„Manni endist varla ævin til að vakna“
Þorvaldur Þorsteinsson, sá fjölhæfi listamaður sem lést langt um aldur fram, hefði orðið 66 ára á laugardaginn og þá var afhjúpaður bekkur til minningar um hann á Hamarkotstúni á Akureyri. Bekkurinn, sem skólasystkin Þorvaldar úr Menntaskólanum á Akureyri létu gera, er skammt frá æskuheimili hans við Hamarstíg.
Hátt í 70 manns komu saman á Hamarkotstúni á laugardaginn. Sindri Kristjánsson, bæjarfulltrúi flutti ávarp fyrir hönd bæjarstjórnar Akureyrar, séra Svavar Alfreð Jónsson, vinur Þorvaldar, talaði einnig og Stefnir Ægir Stefánsson trúbador, flutti ljóð Þorvaldar og lag Megasar, Lengi skal manninn reyna, úr leikritinu Lífið – notkunarreglur sem unnið var í samvinnu Leikfélags Akureyrar og útskriftarárgangs leiklistardeildar Listaháskóla Íslands og frumsýnt á Akureyri í mars 2007.
Urður Bergsdóttir leikkona las því næst eitt af Ósómaljóðum Þorvaldar – Manni endist varla ævin (sem sjá má neðst í fréttinni) og fósturdóttir Þorvaldar, Sigrún Þula, og æskuvinur hans, Reynir Viðarsson, afhjúpu síðan bekkinn áður en hver á eftir öðrum settist þar niður – og hugsaði án nokkurs vafa hlýlega til listamannsins.

Bekkjarsystkini Þorvaldar úr MA sem viðstödd voru á laugardaginn. Standandi, frá vinstri: Karólína Gunnarsdóttir, Stefán Magnússon, Hugrún Sigmundsdóttir, Harpa Hólmgrímsdóttir, og Viðar Reynisson. Sitjandi, frá vinstri: Ragnheiður Gunnbjörnsdóttir, Arnfríður Kjartansdóttir og Birna Gunnlaugsdóttir. Mynd: Hilmar Friðjónsson
Verk margra manna ...
Þorvaldur fæddist á Akureyri 7. nóvember 1960 en lést á heimili sínu í Antwerpen í Belgíu 23. febrúar 2013. Hann var svo „undarlega fjölhæfur og frjór að engin leið er að ná utan um allt það sem eftir hann liggur. Hann var ekki einhamur í sköpun sinni og hugmyndaauðgi,“ segir skólabróðir hans og vinur, Hjörleifur Hjartarson í pistli sem hann birti á Facebok síðu sinni á laugardag; hugleiðingu sem hann skrifaði fyrir leikskrá þegar Leikfélag Akureyrar setti upp verk Þorvaldar, And Björk, of course... snemma árs 2024.
Í þessari fallegu grein skrifar Hjörleifur Hjartarson meðal annars:
„Æviverkið sem hann fór frá þegar hann lést aðeins 52 ára gamall er verk margra manna að umfangi og fjölbreytileika. Myndlistin dygði ein og sér til að halda nafni hans á lofti um ókomna tíð en hún var þó bara ein deild af mörgum - eitt hólf í stórri skjóðu. Rithólfið var jafnstórt og svo voru þarna enn fleiri hólf fyrir kennslu, heimspeki og hugmyndalist og þannig mætti lengi telja. Þessi skjóða var hins vegar úr mjúku efni og erfitt að henda reiður á hvaða verk lenti í hvaða hólfi þegar til kastanna kom. Ekki var auðséð hvar myndlistin endaði og ritlistin tók við, eða leikhúsið. Þar liggur efinn – og vandinn við að fjalla um Þorvald. Maður veit ekki hvar á að byrja – helst að reyna að finna sér nógu þröngt sjónarhorn.“
- Hjörleifur var svo vinsamlegur að leyfa akureyri.net að birta hugleiðinguna í heild: Akureyrin í Þorvaldi

Systur Þorvaldar heitins og fósturdóttir hans sitja á bekknum, frá vinstri: Margrét Þorsteinsdóttir, Jóna Lísa Þorsteinsdóttir og Sigrún Þula Jónsdóttir. Standandi eru, frá vinstri: Guðmundur Víðir Gunnlaugsson, eiginmaður Margrétar, hjónin Sigurveig Björg Harðardóttir og Þorsteinn Gunnar Jónsson, sonur Jónu Lísu, Stefán Guðnason sonur Jónu Lísu með dóttur sína, Evu Marín, Hildur Birta Stefánsdóttir og Sveindís Ósk Ólafsdóttir, eiginkona Stefáns. Mynd: Hilmar Friðjónsson
Manni endist varla ævin
Urður Bergsdóttir leikkona las á laugardaginn úr Ósómaljóðum Þorvaldar, sem fyrr segir, það magnaða ljóð Manni endist varla ævin.
Manni endist varla ævin
til að fylla þetta og falla’ í þetta allt saman.
Manni endist varla ævin
til að sverja þetta og svíkja þetta allt saman.
Manni endist varla ævin
til að finna þetta allt sem fæstir sakna.
Manni endist varla ævin
til að vakna.
Manni endist varla ævin
til að ala þetta og urða þetta allt saman.
Manni endist varla ævin
til að bana þessu og barna þetta allt saman.
Manni endist varla ævin
til að brjóta þetta sem best var gefið.
Manni endist varla ævin
fyrsta skrefið.
Manni endist varla ævin
til að éta þetta ofan í sig allt saman.
Manni endist varla ævin
til að svelgja þetta og sofa úr sér allt saman.
Manni endist varla ævin
til að þegja um þetta allt sem þurfti að segja.
Manni endist varla ævin til að deyja.