Fara í efni
Fréttir

Lokafrágangur gæti frestast til vors

„Stefnt er að því að ljúka uppsteypu á nýjum kirkjutröppum fyrir veturinn en líming á granítskífum á þrepin og fullnaðarfrágangur gætu frestast til vors.“ Mynd: Haraldur Ingólfsson

Stefnt er að því að steypa nýjar kirkjutröppur fyrir veturinn og verður vinnu við það haldið áfram fram á haustið eins og veður og aðstæður leyfa. Fullnaðarfrágangur gæti frestast til vorsins. Þetta kemur fram í frétt á vef Akureyrarbæjar, þar sem sagt er frá því að þrátt fyrir nokkrar tafir á framkvæmdum miði þeim vel, en þar kemur þó ekki fram nákvæmlega hvenær stefnt er að því að opna fyrir umferð um tröppurnar.

Akureyri.net sagði frá því í lok ágúst að vegfarendum um miðbæinn hafi þótt lítið vera að gerast í framkvæmdum við kirkjutröppurnar og fengust þær skýringar að annars vegar hafi minni kraftur verið í framkvæmdum í ágúst vegna sumarleyfa og hinsvegar hafi komið upp ýmis ófyrirséð úrlausnarmál varðandi húsnæðið undir kirkjutröppunum sem bregðast hafi þurft við.  

Þrátt fyrir þetta er enn stefnt að því að steypa upp nýjar kirkjutröppur fyrir veturinn að því er fram kemur á vef Akureyrarbæjar. Úrlausnarefnið er útskýrt í fréttinni á vef bæjarins, en þar segir:

Stórum hluta undirbúnings fyrir uppsteypu á kirkjutröppunum er lokið en þegar mokað var frá efsta vegg gömlu snyrtinganna kom í ljós að steypa þurfti utan á vegginn að hluta áður hægt væri að bræða vatnsvörn á hann, einangra og leggja drenlagnir. Nú er unnið að vatnsþéttingu og lagningu drenlagna og öðrum frágangi á veggnum.

Þá er sagt frá því að reiknað sé með að vinnu við vegginn ljúki í þessari viku og þar með verði hægt að fara í uppbyggingu á nýjum tröppum á efra svæðinu. Í fréttinni er í stórum dráttum farið yfir þau verk sem þegar hafa verið unnin:

Á neðra svæðinu er unnið að nauðsynlegum viðgerðum á þaki gömlu snyrtinganna áður en vatnsvörn verður komið þar fyrir svo hægt sé að fara í uppsteypu á tröppunum þar.

Þá er lokið umfangsmiklum framkvæmdum við landmótun við göngustíginn frá kirkjutröppunum að Sigurhæðum, bæði fyrir ofan hann og neðan. Það svæði er nú tilbúið fyrir þökulagningu og verður allt annað að fara þar um enda var gamli stígurinn afar illa farinn og lá við að hann gæti talist hættulegur á köflum.

Þrátt fyrir nokkrar tafir á framkvæmdum þá miðar þeim vel. Stefnt er að því að ljúka uppsteypu á nýjum kirkjutröppum fyrir veturinn en líming á granítskífum á þrepin og fullnaðarfrágangur gætu frestast til vors.