Fara í efni
Fréttir

Lengri bið eftir viðgerð hjá Mílu - VIÐGERÐ LOKIÐ

UPPFÆRT KL. 19:40: Viðgerð er lokið á neðangreindu strengsliti sem varð við Hörgárbraut á Akureyri í morgun.

Ný tilkynning barst frá Mílu nú undir kvöld vegna slits á streng við Hörgárbraut, viðgerð á honum og truflun á netsambandi á svæðinu.

Þar er upplýst að þegar viðgerð lauk á strengnum sem slitnaði hafi komið í ljós að annað brot var í strengnum. Því þurfi lengri viðgerðartíma til að koma samböndum á. Slitið kom upp vegna jarðvinnu ótengds aðila við Hörgárbraut, eins og það er orðað í tilkynningunni.

Áætlað er að viðgerð muni taka um þrjár til fimm klukkustundir enn.