Fara í efni
Fréttir

Slitinn strengur truflaði netsamband

Truflanir urðu á netsambandi til heimila og fyrirtækja í Glerárþorpi í morgun vegna þess að strengur við Hörgárbraut slitnaði. Þetta kom fram á ellefta tímanum í morgun á mbl.is og er vitnað í tilkynningu frá Mílu.

Fyrir skömmu kom svo önnur tilkynning þar sem sagt er frá því að viðgerðum verði lokið milli kl. 14 og 15 í dag.