Leita að fjórða svæðinu fyrir byggingu smáhúsa
Skipulagsráð hefur falið skipulagsfulltrúa að gera úttekt á mögulegum staðsetningum fyrir tvö ný smáhýsi, til viðbótar við þau þrjú svæði sem nú þegar eru í undirbúningi og vísaði málinu jafnframt til umhverfis- og mannvirkjaráðs til skoðunar.
Markmiðið með því að leita að einu svæði til viðbótar undir smáhýsin er svo takmarka megi fjölda smáhúsanna á hverri lóð. Velferðarráð fjallaði í júní um minnisblað og samþykkti fyrir sitt leyti beiðni um fjölgun svæðanna, ásamt því að vísa málinu til skipulagsráðs.
Þau þrjú svæði sem nú þegar eru í vinnslu eru við Baldursnes, norðan BYKO, við Grænhól vestan Síðubrautar og sunnan við Hlíðarfjallsveg gegnt Réttarhvammi. Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkti í ágúst í fyrra niðurstöðu dómnefndar varðandi útboð á smáíbúðum og að gengið yrði til samninga við Verklausn ehf. um byggingu húsanna.