Fara í efni
Fréttir

Leikskólagjöld á Akureyri 2020 til 2026

Ýmiskonar fullyrðingar hafa verið á sveimi um leikskólagjöld á Akureyri síðustu ár en árið 2024 var tekin upp breytt gjaldskrá. Þá var tekið upp aukalegt gjald fyrir skráningardaga. Hafa þeir hækkað leikskólagjöld foreldra? Auðvitað hefur allt hækkað í krónutölu en stóra spurningin er hvort leikskólagjöld hafi hækkað að raunvirði. Hafa þau hækkað umfram verðbólgu eða kannski hækkað minna en verðbólga og því lækkað að raunvirði? Að skoða það er aðal tilgangur þessarar greinar. Hér er gerð tilraun til að sýna svart á hvítu hver þróunin hefur verið og varpa upp stóru myndinni af þróun leikskólagjalda í Akureyrarbæ.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá hvernig leikskólagjöld fyrir 8,5 klukkustunda vistun hafa breyst í leikskólum sveitarfélagsins frá 2020 til 2026. Upphæðirnar eru fyrir heilt ár, 11 mánaða vistun, alla daga sem leikskólinn er opinn. Sem sagt með öllum skráningardögunum 20 eftir að þeir komu til.

Af síðustu línunni má sjá að leikskólagjöld fyrir 8,5 kls vistun hafa heldur farið lækkandi að raunvirði síðustu ár. Árið 2023 sker sig nokkuð úr með lægstu töluna. (Sjá betur á súluriti)

Fyrirvarar og skýringar: Vísitalan til að meta verlagsbreytingar er ársmeðaltal. Þar sem ekkert ársmeðaltal er komið fyrir árið 2026 er notast við vísitöluna í apríl 2026. Þess vegna er sú tala höfð í sviga. Hún er nær örugglega lægri en ársmeðaltalið 2026 verður og því er líklega að í töflunni sé minni munur á árunum 2025 og 2026 í síðustu tveimur línunum en verður þegar ársmeðaltalið 2026 verður ljóst. Tölurnar fyrir árin 2023 og 2024 eru samkvæmt gjaldskrá sem gilti meginhluta ársins en önnur gjaldskrá var í gildi síðustu þrjá mánuðina 2023 og síðustu fjóra mánuðina 2024. Árið 2024 er tekið upp gjaldfrelsi fyrir 6 tíma (8-14) vistun og tekjutengdur afláttur fyrir vistun umfram 6 tíma. Þar áður var gjaldfrelsið ekki í boði og afsláttur bundinn við félagslega stöðu en ekki tekjur.

Í næstu töflu má sjá sömu upplýsingar fyrir 8 kls. vistun í leikskólum Akureyrarbæjar. Hér er greinilegri lækkun að raunvirði á þessum sex árum sem eru til skoðunar.

Á súluritinu eru leikskólagjöldin sýnd að raunvirði. Þetta eru tölurnar sem eru í neðstu línunni í töflunum tveimur. Hér er auðveldara að sjá þróunina.

En hver er þá niðurstaðan? Leikskólagjöld hafa hækkað í krónutölu eins og áður var nefnt enda hefur þessi tími einkennst af nokkurri verðbólgu. En að raunvirði hafa leikskólagjöld lækkað á Akureyri. Að raunvirði hefur 8,5 kls. dvalartími lækkað lítillega á þessum árum en 8 kls. dvalartími hefur lækkað töluvert.

Til hvers að hafa skráningardaga? Skráningardagar eru til að minnka sóun. Þeir eru til þess að koma í veg fyrir að á dögum svo sem kring um jól og áramót sé leikskólinn fullmannaður en börnin fá. Í staðinn er mönnunin í samræmi við fjölda barna sem kemur í leikskólann.

Eru þeir sem þurfa að vinna fullan vinnudag að niðurgreiða kostnaðinn fyrir þá sem geta látið nægja að barnið sé í 6 tíma vistun sem er gjaldfrjálst? Nei. Leikskólagjöld eru minna en 10% kostnaðarins við leikskóla. Það sparar bæjarfélaginu mikinn kostnað að sumir foreldrar láti 6 tíma á dag duga. Ef allir foreldrar veldu 8 eða 8,5 tíma vistun þyrfti að ráða inn töluverðan aukalegan mannskap til viðbótar við það sem nú er m.a. vegna þess að vinnuvika leikskólakennara er 36 tímar.

Jón Þorvaldur Heiðarsson skipar 9. sæti L-listans í bæjarstjórnarkosningunum 16. maí.