Fara í efni
Fréttir

Látum náttúruna njóta vafans

Ég er stolt af framboðslistanum mínum, Vinstrihreyfingunni - grænu framboði, stjórnmálahreyfingu sem leggur áherslu á umhverfisvernd, félagslegt réttlæti og sjálfbærni til lengri tíma. Þar fer fyrir víðsýn og dugleg ung kona, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, sem jafnframt er sitjandi bæjarfulltrúi fyrir VG.

Við sem búum á Akureyri erum lánsöm. Hér höfum við hreint vatn, nálægð við fjöll og fjörð og einstök tækifæri til útivistar og lífsgæða. En þessar auðlindir eru ekki ótakmarkaðar. Þær þarf að nýta af skynsemi, vernda gegn ofnotkun og mengun. Ekkert er mikilvægara fyrir framtíð Akureyrar en náttúran, heilnæmt umhverfi og skynsamleg nýting þeirra auðlinda sem við eigum. Þetta er forsenda fyrir því að æskan geti erft heilbrigð vistkerfi og trausta innviði. Sá hluti náttúrunnar, sem ekki hefur verið umhverft vegna framkvæmda, eykur stöðugt verðmæti sitt.

Í vali á átta mismunandi framboðslistum á kjördag er kosið um skiptingu á sameiginlegum sjóðum, uppbyggingu og nýtingu á innviðum sveitarfélagsins, ásamt aðgengi að sameiginlegum auðlindum með öðrum sveitarfélögum.

Ómeðhöndlað, rennandi neysluvatn rennur til íbúa og hitaveita einnig. Hjá nágrannaþjóðum er víða mengun grunnvatns og versnandi grunnvatnsstaða. Hækkandi sjávarstaða, hlýnandi loftslag og aukin flóða- og lægðagangur hafa vaxandi áhrif á frárennsli víða um lönd.

Glerárdalur hefur reynst Akureyringum mikil auðlind, þar var á Súlumýrum talin ein besta svarðartekja á landinu. Glerárdalur þótti góður til beitar og námavinnslu, svo ekki sé minnst á sorpurðun. Glerá var og er virkjuð til rafmagnsframleiðslu og neysluvatnið, undirstöðu auðlind hvers samfélags kemur sjálfrennandi í bæinn úr Sellandslindum og Hesjuvallalindum. Á Vagleyrum og í Vaðlaheiði eru einnig vatnslindir. Á níutíu ára afmæli Landgræðslunnar sáði hún í örfoka flög á Glerárdal og hafist var handa við að takmarka upprekstur búfjár, sem er nær enginn í dag. Moldarfok hætti að dreifast um bæinn og óhreinka þvott og bílrúður. Í þá daga var ekki hugleitt að svifryk væri heilsuspillandi. Glerárdalur er í dag mikilvægt, uppgróið útivistarsvæði, með gönguleiðir, skíðasvæði og fjallahjólasvæði. Við skipulag verður að tryggja að mannvirkjagerð og orlofsbyggð gangi ekki of nærri þessum svæðum.

Fyrir 21 ári síðan var svifryk fyrst mælt á Akureyri. Ég er stolt af minni aðkomu að því verkefni. Kom þá í ljós hversu mikil og hættuleg svifryksmengunin getur verið. Vöktun á svifryki er afar nauðsynleg og hefur verið nokkuð regluleg í tvo áratugi. Framtíðarmarkmið hlýtur að vera að draga úr svifryksmengun með tiltækum ráðum og efla upplýsingagjöf til íbúa þegar það fer yfir heilsuverndarmörk.

Nú er um 50 ár síðan skipulagsyfirvöldum datt í hug að fylla upp í Dokkina sem Torfunefsbryggja stendur við og leggja Drottningarbrautina þar og niður nýja Strandgötu. Þetta rifjaðist upp þegar ég leit með mikilli ánægju á Varðskipið Þór við nýju Torfunesbryggjuna, í tilefni 100 ára afmælis Landhelgisgæslunnar. Nú er þessi ljómandi fína djúpa hafnaraðstaða endurbyggð í miðbænum. Við sem söfnuðum undirskriftum og mótmæltum þegar átti að eyðileggja höfnina, megum vera stolt af því að hafa beitt okkur fyrir verndun Torfunesbryggju og Dokkarinnar. Pollurinn er bæði atvinnu- og afþreyingarsvæði og höfn í miðbæ er stolt hvers miðbæjar.

Þessi dæmi minna okkur á að skipulagsmál þarf að vinna heildstætt, með umhverfisgleraugum og til langs tíma. Það sem virðist hagkvæmt eða einfalt í dag getur reynst okkur dýrkeypt síðar. Það sem verndað er í dag getur orðið mikilvæg auðlind bæjarins í framtíðinni.

VG vill kveða niður öll áform um að sjókvíaeldi verði leyft í Eyjafirði. VG vill vernda Pollinn okkar fyrir mengun, vernda Glerárdalinn, og vatnsból bæjarins. VG vill tryggja betri loftgæði, öfluga vöktun á svifryki, ábyrga fyrsta flokks fráveitu og skipulag sem tekur mið af loftslagsbreytingum og lýðheilsu.

Akureyrarbær á skilið bæjarstjórn sem hugsar lengra en til næsta kjörtímabils og kjörna fulltrúa sem vernda það sem ekki verður endurheimt, ef það glatast. Vinstrihreyfingin - grænt framboð hefur skýra afstöðu og sérstöðu í umhverfismálum.

Kristín Sigfúsdóttir er í heiðurssæti á lista Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri 16. maí. Hún er umhverfisfræðingur, fyrrverandi framhaldsskólakennari og fyrrum bæjarfulltrúi VG.