Fyrsti sigur Þórsara kom í Grafarvoginum
Karlalið Þórs í körfuknattleik nældi í sinn fyrsta sigur á tímabilinu þegar liðið sótti Fjölni heim í Grafarvoginn í kvöld. Lokatölur urðu 87-92. Justin Andrews var stigahæstur Þórsara með 31 stig og tók að auki 11 fráköst.
Leikurinn var jafn í upphafi, en Þórsarar náðu góðum kafla þegar leið á fyrsta leikhlutann, náðu 14 stiga forskoti. Þeir héldu því þó ekki lengi, skiluðu því til baka í fyrri hluta annars leikhluta. Þórsarar með tveggja stiga forskot eftir fyrri hálfleikinn.
Seinni hálfleikurinn varð síðan hnífjafn og spennandi nokkurn veginn allt til enda þar sem liðin skiptust átta sinnum á forystunni. Þórsarar unnu þriðja leikhlutann með þriggja stiga mun og fóru inn í lokafjórðunginn með fimm stiga forskot. Þeir reyndust svo heldur sterkari þegar leið á síðasta leikhlutann, náðu átta stiga forskoti þegar innan við mínúta var eftir og unnu að lokum með fimm stiga mun, 87-92.
Fjölnir - Þór (17-28) (29-20) 46-48 (23-26) (18-18) 87-92
Helsta tölfræði leiksins, stig/fráköst/stoðsendingar:
Fjölnir
Fannar Elí Hafþórsson 22/2/1, Rafn Kristján Kristjánsson 14/9/4, Guðlaugur Heiðar Davíðsson 14/5/6, Lewis Junior Diankulu 13/9/6, Kjartan Karl Gunnarsson 10/4/3, Elvar Máni Símonarson 7/7/5, Benóný Gunnar Óskarsson 5/1/1, Ísarr Logi Arnarsson 2/0/0.
Þór
Justin Andrew 31/11/3, Jalen Green 21/10/4, Baldur Örn Jóhannesson 12/5/3, Pétur Cariglia 10/9/6, Hlynur Ingi Finnsson 9/0/0, Axel Arnarsson 3/2/2, Andri Már Jóhannessonn 3/2/0, Páll Nóel Hjálmarsson 3/0/0.
Næst:
- Fimmtudagur 29. október kl. 19:15
1. deild karla, 5. umferð
Þór - Haukar