Fréttir
Kynningarfundur í dag um Tjaldsvæðisreitinn
08.11.2023 kl. 14:40
Kynningarfundur á hugmyndum um skipulag á Tjaldsvæðisreitnum svokallaða verður haldinn í dag og er ástæða til þess að hvetja bæjarbúa til að mæta. Fundurinn verður í kaffiteríu Íþróttahallarinnar og hefst klukkan 17.00. Gengið er inn um aðalinngang að sunnan.
Eins og Akureyri.net greindi frá í gær er reiknað með 18 þúsund fermetrum af íbúðarhúsnæði, 180-200 íbúðum, og 1.150 fermetrum af verslunar- og þjónustuhúsnæði, á reitnum skv. því endurskoðaða skipulagi sem kynnt verður í dag.
- Frétt Akureyri.net í gær um hugmyndirnar: Allt að 200 íbúðir á Tjaldsvæðisreitnum