Kvenfélagasambandið: „Gjöf til allra kvenna“
Kvenfélagasamband Íslands færði Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) gjöf til allra kvenna í dag. Um ræðir tæknilausn sem gerir miðlæga vistun fósturhjartsláttarrita mögulega og eykur öryggi þar sem gögn eru rafræn, vistuð með öruggum hætti og hægt að meta þau hvenær sem er, í rauntíma eða á milli skoðana, auk þess sem gögnin fylgja rafrænni meðgönguskrá konunnar.
Efnt var til söfnunar í tengslum við 90 ára afmæli Kvenfélagasambands Íslands árið 2020 og söfnuðust um 30 milljónir króna. „Ákveðið var að nota þær til kaupa á tækjakosti og hugbúnaði (Milou) honum tengdum, sem stuðlar að bættri heilsuvernd kvenna um land allt,“ segir í tilkynningu frá Kvenfélagasambandinu.
Hugbúnaðurinn verður settur upp á sjö fæðingarstöðum á landinu sem gerir þeim stöðum sem þegar eru tækjum búnir möguleika á að vista miðlægt sjúkraskrárgögn sem tengjast fósturhjartsláttarritum og sónarniðurstöðum. „Einn af stóru kostunum við hugbúnaðinn er, að þessi tækni getur komið í veg fyrir að senda þurfi konur jafnvel um langan veg til til frekari skoðunar. Niðurstöðurnar eru á rafrænu formi og hægt er að nálgast þær og skoða þar sem meiri sérhæfing er til staðar,“ segir einnig í tilkynningunni.

Kvenfélagskonur frá svæðunum austan og vestan Akureyrar, frá Norður-Þingeyjarsýslu til Skagafjarðar, sem viðstaddar voru afhendingu gjafarinnar í dag, ásamt yfirljósmóður Sjúkrahússins á Akureyri. Frá vinstri: Friðrika Baldvinsdóttir, formaður Kvenfélagasambands Suður-Þingeyinga, Hrafnhildur Geirsdóttir, Hrönn Arnheiður Björnsdóttir, Birgit Schov, Sigrún Rósa Vilhjálmsdóttir, Oddný Ingibjörg Jósepsdóttir, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Ingibjörg Jónsdóttir, yfirljósmóðir á SAk.
Fósturhjartsláttarritin er hægt að sjá í rauntíma og fá þar með eftir öruggum leiðum faglegt álit, til dæmis frá starfsfólki á Kvennadeild Landspítala - Háskólasjúkrahúss eða Sjúkrahússins á Akureyri. „Betur sjá augu en auga,“ sagði Ingibjörg Jónsdóttir, yfirljósmóðir á Sjúkrahúsinu á Akureyri, meðal annars í dag.
Ekki þarf lengur að prenta út ritin og fleiri geta séð þau hvort heldur er inni á fæðingarstofunni þegar konur eru í fæðingu, eða þegar sinnt er eftirliti með fóstri á meðgöngu eða vegna einhverra áhættuþátta. Fram kom við afhendingu gjafarinnar í dag að það sé gríðarlega mikið öryggisatriði fyrir konur, bæði í meðgöngu og fæðingu, að hafa sjúkraskrárgögn vistuð miðlægt. Með því móti sé alltaf hægt að nálgast mikilvægar upplýsingar og einnig eru þær vistaðar með ábyrgum og löglegum hætti. Hægt sé að meta gögnin hvenær sem er, í rauntíma og milli skoðana auk þess sem gögnin fylgi rafrænni meðgönguskrá konunnar.
Dagmar Elín Sigurðardóttir, forseti Kvenfélagasambands Íslands, og fleiri úr forystu sambandsins ætluðu að vera viðstaddar athöfnina á SAk í dag en komust ekki norður þar sem flug var fellt niður vegna veðurs í Reykjavík. Þær tóku þátt í athöfninni í gegnum fjarfundabúnað og Friðrika Baldvinsdóttir, formaður Kvenfélagasambands Suður-Þingeyinga, hljóp í skarðið og afhenti gjöfina formlega.