Klórgasmengun vegna mannlegra mistaka
Klórgas myndaðist í fiskvinnslunni Hnýfli við Óseyri á Akureyri síðdegis, eins og grunur lék á. Um mannleg mistök var að ræða; stíflueyðir blandaðist öðru efni sem var notað við þrif á húsnæðinu að því er Maron Pétursson varaslökkviliðsstjóri á Akureyri segir í samtali við mbl.is.
Fjórir starfsmenn Hnýfils fundu fyrir óþægindum og voru fluttir á Sjúkrahúsið á Akureyri eins og fram kom fyrr í dag, en ekki er vitað um líðan þeirra.
Slökkvilið og lögregla hafa lokið störfum á vettvangi en rannsóknardeild lögreglunnar á Norðurlandi eystra fer með rannsókn málsins.
Að sögn Marons mældi slökkvilið styrk efna á vettvangi og fylgdist með honum þar til mæligildi voru komin niður í núll. „Mælingar voru einnig gerðar í kringum húsnæðið og nærliggjandi byggingar og mældist þar engin mengun. Fólki í nágrenninu var þó ráðlagt að lofta út,“ segir í frétt mbl.is.
- Frétt akureyri.net í dag:
Efnaleki á Óseyri – Fólk haldi sig fjarri

Lögreglan lokað hluta Óseyrar eftir efnalekann síðdegis í dag. Mynd: Skapti Hallgrímsson