Fréttir
Efnaleki á Óseyri – Fólk haldi sig fjarri
23.09.2026 kl. 17:50
Efnaleiki varð í fiskvinnslunni Hnýfli við Óseyri 22 síðdegis. Fólki í nálægum húsum var gert að yfirgefa svæðið og slökkviliðsmenn og lögregla eru við vinnu á vettvangi. Á Facebook síðu lögreglunnar er biðlað til fólks um að halda sig fjarri.
Grunur um klórgasleka – Fjórir til aðhlynningar á SAk
UPPFÆRT - Lögreglan birti eftirfarandi upplýsingar á Facebook síðu embættisins kl. 18:15.
Í kjölfar gruns um efnaleka í fiskvinnslunni Hnýfli á Óseyri hafa 4 starfsmenn fiskvinnslunnar leitað aðhlynningar á sjúkrahúsinu á Akureyri. Grunur leikur á að um klórgasleka sé að ræða en slökkvilið vinnur að því að staðfesta það. Slökkvilið og lögregla eru enn á vettvangi. Lokanir eru enn í gildi og áfram biðlað til fólks að halda sig fjarri Óseyri.
Fréttin verður uppfærð þegar nánari upplýsingar berast