Fara í efni
Fréttir

Kjólaleigur spretta upp á Akureyri

Viktoría Rún hefur stofnað fyrirtæki á Akureyri þar sem hún býður konum að leigja sér kjól á skynsamlegu verði. Mynd: SNÆ

Tvær kjólaleigur hafa nýlega opnað á Akureyri. Viktoría Rún Sigurðardóttir, eigandi Kjólaleigu Akureyrar, segir þetta vera til marks um að kominn hafi verið tími á slíka leiguþjónustu fyrir norðan.

Akureyri.net sagði nýlega frá því að Sparileigan hefði hafið starfsemi í bænum en þrjár ungar stúlkur standa að þeirri leigu. Á svo gott sem sama tíma opnaði einnig Kjólaleiga Akureyrar dyrnar án þess að eigandinn vissi af hinni leigunni. „Ég leyfði mér að vera pínu leið í einn dag þegar ég komst að þessu, en vonandi er pláss fyrir báðar leigurnar hér í bænum,” segir Viktoría Rún.

Góð eftirspurn fyrir útskriftir og brúðkaup

Viktoría Rún, sem er 24 ára Akureyringur, er nýútskrifuð sem einka- og styrktarþjálfari (ÍAK) frá Fjölbrautarskóla Suðurnesja. Hún opnaði sína kjólaleigu þann 12. maí í rými fyrir ofan Veiðiríkið, verslun föður síns, Sigurðar Brynjars Sigurðssonar, að Óseyri 2. Hún segist lengi hafa velt fyrir sér þörfinni fyrir slíka leigu í bænum og þar sem enginn var búinn að stökkva á tækifærið ákvað hún að gera það sjálf. Kjólana  á Kjólaleigu Akureyrar er hægt að skoða á heimasíðu kjólaleigunnar en leigan er opin eftir samkomulagi og hægt að bóka tíma í mátun. Hún segir eftirspurnina hafa verið góða, sérstaklega nú þegar útskriftir og brúðkaup eru fram undan.

Hægt er að skoða kjólana hjá Kjólaleigu Akureyrar á netinu og finna svo tíma til að koma í mátun. Mynd: SNÆ

Stólar á eigin smekk og samfélagsmiðla

„Ég er með um fimmtán til tuttugu kjóla núna en fleiri eru á leiðinni. Kjólarnir eru sumarlegir en svo er ég líka með áberandi kjóla,“ segir hún og bætir við að úrvalið miði á yngri konur. Kjólasafnið samanstendur af nýjum kjólum pöntuðum að utan. Hún segir að hún skoði hvað sé vinsælt á samfélagsmiðlum og velji kjóla sem falla bæði að eigin smekk og því sem hún telji að muni höfða til viðskiptavina. Þá eru nokkrir kjólar í safninu sem hafa verið keyptir notaðir innanlands og útilokar Viktoría Rún ekki að hún muni taka við fleiri notuðum kjólum. Aðalatriðið sé að þeir séu í góðu ástandi. „Hvort sem kjóllinn kostaði þúsund kall eða hundrað þúsund, þá á hann skilið fleiri en eitt tækifæri,“ segir Viktoría.

Verðlagið er hóflegt, frá 3.500 kr. og upp í 6.500 kr., en Viktoría Rún leggur áherslu á að þjónustan sé aðgengileg sem flestum. „Mig langar ekki að hafa þetta of dýrt. Flestir kjólarnir kosta sex þúsund, sem mér finnst skynsamlegt verð.“ Þá ítrekar Viktoría að hugmyndin byggi ekki bara á ást á kjólum heldur einnig á hringrásarhagkerfinu. „Það er svo algengt að fólk kaupi dýran kjól, noti hann einu sinni og hann safni svo ryki inn í skáp. Þetta er góð leið til að nýta fötin betur,“ segir Viktoría Rún, spennt fyrir framhaldinu.

Kjólaleiga Akureyrar er með aðstöðu fyrir ofan verslunina Veiðiríkið að Óseyri 2. Opið er samkvæmt samkomulagi.