Fara í efni
Fréttir

Jólakort Alice frá 1959 úr safni Ingunnar

SÖFNIN OKKAR – 148

Frá Héraðsskjalasafninu á Akureyri
_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.


Jólakort úr safni Ingunnar Kristjánsdóttur

Það var í kringum 1890 sem farið var að selja jólakort á Íslandi. Þau voru oftast dönsk eða þýsk en nokkru eftir aldamót fóru íslensk jóla- og nýárskort að sjást í verslunum. Í fyrstu voru þau skreytt myndum af landslagi eða úr einstökum kaupstöðum en seinna komu teiknuð kort til sögunnar. Lengi barst talsvert af jólakortum frá ættingjum sem flust höfðu til Vesturheims og jólakortasendingar færðust mjög í vöxt á árunum milli stríða.

Smátt og smátt urðu jólakortin sem send voru manna á millum fleiri eftir því sem leið á 20. öldina þótt engin tölfræði sé til um það. Margar fjölskyldur sendu gjarnan 50-100 jólakort á ári þegar mest var. Árið 2010 sendu um þrír af hverjum fjórum Íslendingum jólakort samkvæmt könnun Gallup en með komu samfélagsmiðla hafa sendingar jólakorta í pósti til ættingja og vina að mestu horfið.

Nú stendur yfir sýning á jólakortum úr kortasafni Ingunnar Kristjánsdóttur í anddyri Brekkugötu 17. Sýningin er á vegum Héraðsskjalasafnsins.

Ingunn Guðrún Kristjánsdóttir er fædd 22. desember árið 1928. Um árabil safnaði hún kortum sem hún flokkaði og setti í möppur. Í nóvember 2008 afhenti hún Héraðsskjalasafninu á Akureyri kortasafnið en áður hafði Ingunn afhent Borgarskjalasafni Reykjavíkur hluta þess. Kortasafnið kom í nokkrum stórum pappakössum en síðan þá hafa þau verið skráð og eru nú geymd í 33 öskjum. Kortin hafa ekki verið talin en þau gætu verið um 10.000. Kortin eru af öllum gerðum og stærðum: afmæliskort, nýárskort, fermingarkort, páskakort og póstkort en stærstur hluti kortasafnsins eru jólakort. Auk kortanna innheldur afhendingin líka ljósmyndasafn Ingunnar af kirkjum landsins.

Það gefur auga leið að ef hægt er að velja úr u.þ.b. 10.000 kortum til sýningar getur valið verið erfitt en leiðarljósið var að taka sýnishorn úr nokkrum þeirra flokka sem Ingunn sjálf gerði. Kortin eru því ekki flokkuð eftir aldri heldur frekar eftir listamönnum, myndefni og útliti, tækni, framleiðendum og útgefendum.

Það er því mjög við hæfi að skjölin frá okkur að þessu sinni eru tvö jólakort úr safni Ingunnar. Kortin teiknaði Alice J. Sigurðsson og voru gefin út af Sunnudagaskóla og Æskulýðsfélagi Akureyrarkirkju árið 1959. Kortin sýna börn og æskufólk á leið til kirkjunnar og voru seld til styrktar starfi útgefandanna.

Alice Julia Sigurðsson fæddist árið 1921 í Bandaríkjunum og lést á Akureyri 2011. Hún giftist Aðalsteini Sigurðssyni menntaskólakennara og fluttist til Akureyrar árið 1945.

Auk húsmóðurstarfa sinnti hún ýmis konar grafískum verkefnum fyrir einstaklinga, félög og fyrirtæki á Akureyri. Margir kannast við jólamerki kvenfélagsins Framtíðarinnar sem Alice teiknaði um árabil. Einnig fékkst hún við málaralist, einkum vatnsliti og tók þátt í mörgum málverkasýningum. Þekktust er hún sennilega fyrir fuglamyndir sínar. Alice hlotnaðist heiðursviðurkenning frá Akureyrarbæ fyrir framlag sitt til menningarmála í bænum.