Jöfn og þétt fjölgun en breyttir vaxtarþættir
Íbúum Akureyrar hefur fjölgað jafnt og þétt í rúmlega heila öld en helstu vaxtarþættirnir hafa breyst. Þetta kemur fram í afar fróðlegri grein Þórodds Bjarnasonar prófessors sem hann kallar Hvernig fjölga Akureyringar sér? og akureyri.net birtir í dag en Þóroddur birti fyrst á vefsíðu sinni, landsbyggdalatte.substack.com.
„Vöxturinn var lengi vel drifinn áfram af náttúrulegri fólksfjölgun og aðflutningi fólks frá öðrum samfélögum á Norðurlandi eystra en er nú fyrst og fremst vegna aðflutnings fólks frá útlöndum, höfuðborgarsvæðinu og öðrum landshlutum,“ segir í greininni.
Þóroddur kemur víða við en hér eru fróðleg dæmi sem hann nefnir:
- Á fimm ára tímabili 1991-1995 hagnaðist Akureyri um 349 íbúa frá öðrum byggðarlögum á Norðurlandi eystra en tapaði 321 til höfuðborgarsvæðisins og annarra landshluta og tapaði 67 íbúum til útlanda.
- Flutningsjöfnuður Akureyrar á þessum fimm árum var því lítið eitt óhagstæður um 39 íbúa.
- Á fimm ára tímabili 2020-2024 hagnaðist Akureyri hins vegar aðeins um 67 íbúa frá öðrum byggðarlögum á Norðurlandi eystra en hagnaðist um 436 íbúa frá höfuðborgarsvæðinu og öðrum landshlutum og 444 íbúa frá öðrum löndum.
- Flutningsjöfnuður Akureyrar á þessum fimm árum var því hagstæður um 947 íbúa.
Smáborgir sameina ólíka kosti
Þóroddur segir að á síðari tímum hafi fólksfjölgun á Akureyri verið með miklum ágætum og að framtíðarþróun mannfjöldans á Akureyri muni umfram allt ráðast af búsetukostum og aðdráttarafli hennar. „Erlendar rannsóknir hafa sýnt að smáborgir með 20-50 þúsund íbúa sameina ólíka kosti borga og dreifbýlis og draga til sín bæði íbúa dreifbýlis í leit að meira spennandi borgarlífi og íbúa stærri borga í leit að meira afslappaðra dreifbýlislífi,“ segir hann. „Búsetuánægja í slíkum smáborgum er gjarnan meiri en í öðrum tegundum byggðarlaga og fólksfjölgun meiri en í stærri borgum sem standa frammi fyrir áskorunum svimandi húsnæðisverðs, tímafrekra samgangna, erfiðra félagslegra vandamála og neikvæðra umhverfisáhrifa.“
Grein Þórodds: Hvernig fjölga Akureyringar sér?