Fara í efni
Fréttir

Íþróttir: hvernig varð forgangsröðunin til?

Geir Hólmarsson hefur ritað nokkrar greinar um íþróttamannvirki á Akureyri undanfarin misseri og sent Akureyri.net til birtingar. Í þeirri nýjustu fjallar hann um forgangsröðun uppbyggingar íþróttamannvirkja.

„Forgangsröðunin varð til í starfi starfshóps um nýframkvæmdir íþróttamannvirkja og skilaði hópurinn af sér skýrslu. Það er eitt að forgangsraða, það er annað á hvaða forsendum forgangsröðunin er gerð,“ segir Geir.

„Þegar ég las skýrslu hópsins vöknuðu spurningar sem ég hef sent formanni frístundaráðs sem sendi þær til sviðstjóra málaflokksins. Nú eru um 45 dagar liðnir og ekki sjáanlegt að fyrirspurninni eigi að svara. Því spyr ég á þessum vettvangi formann frístundaráðs, Evu Hrund Einarsdóttur sömu spurninga.“

Smellið hér til að lesa grein Geirs Hólmarssonar.