Fara í efni
Fréttir

Íshokkí: Framlenging og tap hjá SA gegn SR

Úr leik liðanna í úrslitakeppninni í vor. Unnar Hafberg Rúnarsson og Atli Sveinsson sækja að Jóhanni Björgvini Ragnarssyni í marki SR. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

Eftir að hafa tvívegis náð forystunni töpuðu SA Víkingar naumlega fyrir liði Skautafélags Reykjavíkur í Toppdeild karla í íshokkí á laugardaginn. Leikurinn fór í framlengingu þar sem SR-ingar skoruðu gullmarkið, lokatölur urðu 3-2 SR í vil. 

Stefán Guðnason kom SA í forystu í fyrsta leikhluta, en Styrmir Maack jafnaði um tveimur mínútum síðar. Aftur náðu Akureyringar forystu um miðjan fyrsta leikhluta með marki frá Jóhanni Má Leifssyni. Ævar Arngrímsson jafnaði í 2-2 aftur fyrir SR snemma í öðrum leikhluta og þar við sat út annan og þriðja leikhluta. Því þurfti að grípa til framlengingar til að skera úr um sigurinn og hvort liðið fengi aukastigið. Þar var það Heiðar Örn Kristveigarson sem tryggði Reykvíkingum 3-2 sigur með marki eftir þunga sókn SR-inga á lokamínútu framlengingarinnar.

SR - SA 3-2 (1-2, 1-0, 0-0, 1-0)

SR

Mörk/stoðsendingar: Kári Arnarsson 1/1, Heiðar Örn Kristveigarson 1/0, Styrmir Maack 1/0, Hákon Magnússon 0/2, Ævar Arngrímsson 1/0, Egill Þormóðsson 0/1, Sölvi Atlason 0/1
Varin skot: Jóhann Björgvin Ragnarsson 26 af 28 (92,9%).
Refsingar: 14 mínútur.

SA

Mörk/stoðsendingar: Jóhann Már Leifsson 1/0, Stefán Guðnason 1/0, Gunnar Arason 0/2, Pétur Elvar Sigurðsson 0/1.
Varin skot: Jakob Jóhannesson 36 af 39 (92,3%).
Refsingar: 8 mínútur.

SA er í 2. sæti Toppdeildarinnar með sjö stig að loknum fjórum leikjum. SR er á toppnum með 11 stig.

Leikskýrslan

Staðan í deildinni