Fara í efni
Fréttir

Imperial – nýtt upphaf í miðbænum í sumar

Verslunin Imperial er að flytja frá Glerártorgi í gamla Arionbankahúsið í miðbæ Akureyrar. Stefnt er á opnun í miðbænum í júlí.

Tískuvöurverslunin Imperial flytur brátt frá Glerártorgi og inn í miðbæ Akureyrar. Eigandi Imperial, Halldór Magnússon, segir flutninginn jákvæð tímamót sem marki nýtt upphaf. Nýja verslunin mun opna í gamla Arionbankahúsinu sem hefur meir og minna staðið tómt síðan
bankinn flutti starfsemi sína á Glerártorg.

„Ég lít á þetta sem enn betra húsnæði fyrir verslunina. Ég verð miklu sýnilegri og finn að það er kraftur í miðbænum sem mig langar til að vera hluti af,“ segir Dóri sem segir að verslunin og þjónustan muni verða sú sama þó verslunin flytji.

Horfið jákvæður fram á veginn

Flutningur verslunarinnar frá Glerártorgi og í miðbæinn kemur ekki til af góðu en eins og Akureyri.net hefur áður greint frá hefur Dóri gefist upp á verunni í verslunarmiðstöðinni vegna óhagstæðs rekstrarumhverfis og breyttrar stefnu eiganda Glerártorgs. Dóri vill þó ekki láta deilur við eigendur Glerártorgs draga úr jákvæðri orku verkefnisins og horfið jákvæður fram á veginn. „Ég ætla ekki að láta neikvæðni halda aftur af mér. Ég er á leið í miðbæinn og það verður flott!“

Í kjölfar umfjöllunar í fjölmiðlum um brotthvarf Imperial frá Glerártorgi segir Dóri að fjöldi fólks hafi sett sig í samband við hann, bæði til að stinga upp á nýju húsnæði undir búðina og til að sýna honum stuðning. „Ég er stoltur af því að hafa rekið verslun mína af heiðarleika, einlægni og ástríðu í 17 ár á Glerártorgi og ég er stoltur af því hvernig nærsamfélagið hefur brugðist við með stuðningi, skilningi og trú á mig sem manneskju. Ég vil því segja takk til alls þess góða fólks víðsvegar að af landinu sem hefur skrifað mér og sýnt mér hlýju og stuðning. Það skiptir mig máli og hefur snert mig djúpt,“ segir Dóri.

Ég ætla ekki að láta neikvæðni halda aftur af mér. Ég er á leið í miðbæinn og það verður flott!

Dóri í Imperial hefur fundið húsnæði undir verslunina í miðbæ Akureyrar. Hann hlakkar til að hefja nýjan kafla í miðbænum en verslunin hefur verið á Glerártorgi í 17 ár. 

Vill styrkja miðbæinn í heild

Nýja verslunarrýmið í miðbænum er um 40 fermetrum minna en húsnæðið á Glerártorgi, en Halldór segir að það muni samt nýtast vel og vera í anda Imperial. Þá sér hann fyrir sér að setja blóm og stóla fyrir utan verslunina og vera stundum með einhverjar uppákomur, til
dæmis að bjóða upp á kaffi eða grilla pylsur á góðviðrisdögum. „Ég vil ekki bara opna verslun þarna, ég vil leggja mitt af mörkum til að efla og styrkja miðbæinn í heild,” segir Dóri, sem segir að miðbærinn hafi verið að taka jákvæðum breytingum undanfarið og það sé
aukinn kraftur í götulífinu. „Það eru góðir hlutir að gerast í miðbænum. Ég finn það og mig langar að taka þátt í því. Nú byrjar nýr kafli.“

Verslun Imperial verður lokað á Glerártorgi í enda júní og stefnt er að því að verslunin verði opnuð á nýja staðnum í júlí.