Hollvinir minnast Sólveigar með gjöf
Fulltrúar úr stjórn Hollvinasamtaka Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) heimsóttu lyflækningadeild SAk og afhentu starfsfólki blómvönd og samúðarkveðju, vegna fráfalls Sólveigar Huldu Valgeirsdóttur deildarstjóra.
Að því er fram kemur í frétt á vefsíðu SAk munu Hollvinasamtökin einnig gefa lyflækningadeild þá fjármuni sem starfsfólk deildarinnar safnaði í nafni Sólveigar, auk þeirra fjármuna sem fengust vegna sölu minningarkorta. Þar að auki ætla Hollvinir að afhenda deildinni eina milljón króna.
„Við erum Hollvinum ákaflega þakklát fyrir þessa gjöf og fyrir þann hlýhug sem Hollvinir og samfélagið allt hefur sýnt okkur á þessum erfiðu tímum,“ segir Rebekka Héðinsdóttir, deildarstjóri lyflækningadeildar í fréttinni.
Jóhannes G. Bjarnason, formaður stjórnar Hollvinasamtakanna segir að fráfall Sólveigar sé sannarlega reiðarslag fyrir fjölskyldu hennar, vini, samstarfsfélaga og okkar litla samfélag. „Af veikum mætti vildum við í Hollvinum leggja okkar af mörkum til stuðnings við lyflækningadeild, sem sannarlega þarf að standa vörð um,“ segir Jóhannes.