Hollvinir gáfu fyrir 62 milljónir, 200 á fjárlögum
Hollvinir Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) færðu stofnuninni gjafir að verðmæti 62 milljóna króna á síðasta ári en fjárfestingaheimild SAk á fjárlögum á því ári var 200,6 milljónir. Gjafir Hollvina námu því um 31% af framlagi ríkisins til fjárfestinga árið 2024. Þetta kemur fram á vef SAk í dag, þar sem greint er frá enn einni gjöfinni.
„Framlag Hollvina skiptir SAk einfaldlega sköpum, sem og framlag annarra aðila í samfélaginu til sjúkrahússins. Það er hreinlega óhugsandi að sjá fyrir sér stöðu tækjabúnaðar á sjúkrahúsinu ef ekki kæmi til gjafa frá utanaðkomandi aðilum.“ segir Konráð Gylfason, framkvæmdastjóri rekstrar og klínískrar stoðþjónustu.
Ákaflega þakklát
Hollvinir SAk afhentu að þessu sinni dag- og göngudeild skurðlækna nýja gipssög. Sögin sem var fyrir var komin vel til ára sinna og var bæði hávær og óþjál í notkun, segir á vef SAk. „Gipssagir eru sérhannaðar til að saga eingöngu gifs án þess að særa húð. Nýja sögin er mun léttari, hljóðlátari og þjálari í notkun en sú gamla og léttir því störf hjúkrunarfræðinga á deildinni og gerir vonandi upplifun þjónustuþega deildarinnar af gipstöku betri. Við erum Hollvinum ákaflega þakklát fyrir að hafa veitt okkur þessa rausnarlegu gjöf,“ er haft eftir Þórgunni Birgisdóttur, deildarstjóra dag- og göngudeildar skurðlækninga, og Eydísi Unni Jóhannsdóttur, hjúkrunarfræðingi í deildinni.
Hvetur fólk til að gerast hollvinir
„Það er alltaf jafn gleðilegt að geta fært deildum sjúkrahússins tækjabúnað sem bætir þjónustu við sjúklinga og starfsaðstæður starfsfólks,“ segir Jóhannes Bjarnason, formaður Hollvina og bætir við: „Við þurfum á því að halda að starfsemi Hollvina eflist og að Hollvinir greiði þá greiðsluseðla sem berast í heimabanka, enda er það þannig sem við getum haldið áfram að veita gjafir sem þessar.“