Fara í efni
Fréttir

Hollvinasamtök SAk gáfu rafknúnar lyfjadælur

Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri afhentu stofnuninni nýverið  10 svokallaðar CADD-lyfjadælur. Um er að ræða litlar, rafknúnar dælur sem notaðar eru til að gefa sjúklingum lyf stöðugt eða eftir þörfum yfir ákveðinn tíma. Þær eru einkum nýttar í verkjameðferð og í líknarmeðferð, þar sem þörf er á nákvæmri og samfelldri lyfjagjöf.

„Þetta eru mjög mikilvægar gjafir, sér í lagi þar sem þær dælur sem eru til á SAk eru orðnar barn síns tíma og fáar eftir sem hægt er að nota,“ segir Rebekka Héðinsdóttir, deildarstjóri á lyflækningadeild á vef stofnunarinnar. Hollvinasamtök SAk hafa um árabil stutt við starfsemi sjúkrahússins með margvíslegum hætti og lagt sitt af mörkum til að efla þjónustu og aðbúnað sjúklinga, segir þar.

„Það er okkur í Hollvinasamtökunum mikilvægt að geta lagt okkar af mörkum til að bæta þjónustu við sjúklinga og aðstandendur þeirra,“ segir Jóhannes Gunnar Bjarnason, formaður stjórnar Hollvina. „Við vitum að þessi búnaður getur haft raunveruleg áhrif á líðan fólks á erfiðum tímum og erum stolt af því að styðja við starfsemi sjúkrahússins með þessum hætti.“

Á myndinni eru fulltrúar Hollvina og deildarstjóri og aðstoðardeildarstjórar lyflækningadeildar. Frá vinstri: Inga Margrét Árnadóttir, Jóhannes Gunnar Bjarnason, Kristín Sigfúsdóttir, Jóhann Rúnar Sigurðsson, Heiða Berglind Magnúsdóttir, Hermann Haraldsson, Rebekka Héðinsdóttir, Bjarni Jónasson og Ragnheiður Birna Guðnadóttir. 


  • Jóhannes Gunnar, formaður Hollvina, hvetur sem fyrr alla sem vettlingi geta valdið til að ganga í samtökin.
  • Árlegt styrktar- og árgjald er 6.000 krónur, hann bendir á að greiðsluseðlar hafi verið sendir út og eindagi greiðslu sé 1. maí.
  • Hægt er að gerast Hollvinur með því að skrá sig hér: Gerast Hollvinur