Fara í efni
Fréttir

Hjartastopp hrjáir enn myndaljósið við Hof

Það er lítið gaman fyrir ferðamenn að taka myndir við sjálfuljósið sem staðsett er milli Hofs og Torfunefsbryggju. Ekkert ljós logar þar því tengingin við ljósið rofnaði í fyrra þegar framkvæmdir stóðu yfir á bryggjunni. Mynd: SNÆ

Hjartaljósið sem sett var sérstaklega upp í miðbænum fyrir myndatökur fyrir ferðamenn hefur verið óvirkt síðan í fyrra. Óvíst er hvenær það fer aftur að skína.

Myndaljósið, sem sett var upp í miðbænum árið 2018, hefur verið óvirkt síðan rafstrengur að ljósinu var óvart grafinn í sundur í tengslum við framkvæmdir á Torfunesbryggju í fyrrasumar. Samkvæmt Þórgný Dýrfjörð, forstöðumanni menningar-, markaðs- og atvinnumála hjá Akureyrarbæ, er verið að skoða hvað kostar að tengja ljósið aftur. Segir hann bagalegt að ljósið skíni ekki lengur, en bindur vonir við að ljósið verði aftur komið rafmagn á það fyrir sumarið.

Þegar kveikt er á ljósinu er hægt að taka fallega mynd af hjartanu og fá kirkjuna í bakgrunn. Mynd: Markaðsstofa Norðurlands. 

Sett upp fyrir ferðamenn

Í fyrrasumar voru hjörtun í umferðarljósunum á Akureyri mikið í fréttum í kjölfar þess að Vegagerðin sendi skipulagsráði Akureyrarbæjar erindi með beiðni um að hjörtun í umferðarljósum Vegagerðarinnar yrðu fjarlægð þar sem þau stæðust hvorki kröfur um umferðarmerki né umferðaröryggi.

Akureyrarbær setti upphaflega upp umrætt myndaljós svo ferðamenn gætu myndað sig á öruggan hátt. Ljósið er staðsett sunnan við Hof en í fyrra sagði Þórgnýr í viðtali við akureyri.net að hugsanlega væri staðsetningin ekki nægilega áberandi. Þá vildi hann einnig sjá sams konar myndaljós á fleiri stöðum í miðbænum.