Fara í efni
Fréttir

Hafa þungar áhyggjur af hraðakstri á Þelamörk

Mynd af vef Hörgársveitar

Foreldrafélag Þelamerkurskóla og sveitarstjórn Hörgársveitar hafa miklar áhyggjur af því hve hratt er ekið eftir þjóðvegi 1 í nágrenni við skólann. Hámarkshraði þar er 90 kílómetrar en skv. mælingum í maí er meðalhraði á ákveðnum tíma meiri en það og sá ökumaður sem hraðast fór mældist á 167 km hraða. Sveitarstjórn vill að Vegagerðin lækki leyfilegan hámarkshraða á þessum vegarkafla.

Fjallað er um þetta á vef sveitarfélagsins. Þar segir: „Hámarkshraði við Þelamerkurskóla er 90 km/klst, skólalóðin liggur að þjóðvegi 1 og eru þar börn að leik allan ársins hring.“

Upphaf málsins er að foreldrafélag skólans sendi inn erindi til sveitarfélagsins fyrr á þessu ári þar sem lýst er áhyggjum af miklum umferðarhraða í nágrenni skólans. „Umferðin er gífurlega mikil og lýsir sveitarstjórn Hörgársveitar þungum áhyggjum yfir miklum umferðarhraða við skólann. Samkvæmt mælingum sem gerðar voru í maí kemur fram að meðalhraði er á ákveðnum tímum yfir 90 km/klst. Hæsti mældi hraði var 167 km/klst. Sveitarstjórnin hefur ítrekað það við Vegagerðina að umferðarhraði við Þelamerkurskóla verði lækkaður hið fyrsta og gerðar verði ráðstafanir við veginn til að auka öryggi barna við skólann,“ segir á vef Hörgársveitar.