Fara í efni
Fréttir

Aftur til miðalda um helgina á Gásum

Á Miðaldardögum á Gásum verður meðal annars hægt að fylgjast með handverksfólki að störfum og kynnast lífsháttum fólks á miðöldum.

Miðaldadagar á Gásum verða haldnir á laugardag og sunnudag, 18. og 19. júlí, á hinum sögufræga verslunarstað Gásum við Eyjafjörð. Þar gefst gestum kostur á að upplifa lífið eins og það var á miðöldum með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Kaupstaðurinn er opnaður kl. 11.00 báða dagana en lokað á ný kl. 16.00.

„Landnámið og víkingaöldin hafa fengið mikla athygli, en miðaldirnar hafa verið heldur út undan. Með Miðaldadögum viljum við vekja athygli á þessum mikilvæga kafla Íslandssögunnar og sýna hvernig fólk lifði og starfaði á þessum tíma,“ segir Níels K. Ómarsson, framkvæmdastjóri Miðaldadaga, en markmiðið með hátíðinni að skapa sem raunverulegasta mynd af daglegu lífi á miðöldum.

Að sögn Níelsar er það stór hluti af upplifuninni að Miðaldadagar séu haldnir á sjálfum staðnum þar sem sagan gerðist, en það gefi gestum einstakt tækifæri til að tengja saman söguna, fornleifarnar og endurgerð mannlífs frá miðöldum. „Við erum á sjálfum staðnum þar sem sagan gerðist og leggjum mikla áherslu á nákvæmar endurgerðir. Tjöld, fatnaður og búnaður eru byggð á sögulegum heimildum og rannsóknum,“ segir Níels.

Níels verður með lifandi leiðsögn um svæðið kl. 12 og 15 báða dagana.  

Söguskilningur líka mikilvægur

Hátíðin í ár verður með hefðbundnu sniði en alltaf eru þó einhverjar breytingar og nýjungar. Til dæmis gefst börnum í ár kostur á að láta leiða hest undir sig gegn vægu gjaldi. „Börn elska að koma hingað út í náttúruna. Hér eru öll skilningarvitin virk; þau sjá, heyra, finna lykt og upplifa söguna á lifandi hátt,“ segir Níels sem telur mikilvægt að halda sögu staðarins á lofti og segir að Miðaldadagar gefi fólki betri skilning á því hvernig forfeður okkar lifðu. „Það er mikið talað um lesskilning, en söguskilningur er ekki síður mikilvægur. Hér áttar fólk sig á því hvernig samfélagið starfaði, hvernig fólk bjó til fötin sín, vann fyrir lífsviðurværi sínu og hversu mikilvæg fjölskyldan var.“

Frítt inn

Miðaldadagar hafa verið haldnir árlega þriðju helgina í júlí undanfarin ár og segir Níels að sú hefð hafi fest sig í sessi. Sumir komi á hverju ári á hátíðina sem er gjaldfrjáls. Segir Níels að Minjasafnið á Akureyri hafi stutt verkefnið myndarlega undanfarin ár með því að fjármagna markaðsmál og nauðsynlegan rekstrarkostnað.  „Við erum afar þakklát fyrir þann stuðning," segir Níels spenntur fyrir helginni.  Vonast hann til að sem flestir nýti tækifærið til að heimsækja Gásir og upplifa íslenska miðaldasögu í sínu rétta umhverfi.