Fara í efni
Fréttir

Grein um sýklasótt birt í Læknablaðinu

Björn Gunnarsson og Bergþór Steinn Jónsson. Mynd: sak.is.

Björn Gunnarsson, klínískur gæðastjóri við Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) og sérfræðingur í barnalækningum, barnagjörgæslulækningum og svæfinga- og gjörgæslulækningum, er aðalhöfundur nýrrar yfirlitsgreinar sem birtist í júníhefti Læknablaðsins. Greinin ber heitið Börn með sýklasótt og fjallar um greiningu og meðferð sýklasóttar hjá börnum og dregur saman nýjustu þekkingu á þessu mikilvæga sviði.

Meðhöfundar greinarinnar eru Bergþór Steinn Jónsson, sérfræðingur í bráðalækningum og bráðalækningum barna við SAk, og Theódór Skúli Sigurðsson, sérfræðingur í barnasvæfinga- og gjörgæslulækningum við Landspítalann.

Sýklasótt er lífshættulegt ástand sem getur komið fram þegar viðbrögð líkamans við sýkingu valda truflun á starfsemi líffæra. Þótt sjúkdómurinn sé tiltölulega sjaldgæfur á Íslandi er hann enn ein helsta dánarorsök barna af völdum sýkinga á heimsvísu.

Mikilvægt að greina sýklasótt snemma

Í greininni leggja höfundarnir sérstaka áherslu á mikilvægi þess að greina sýklasótt snemma, þar sem fyrstu einkenni geta verið óljós og þróast hratt yfir í alvarlegt ástand. Farið er yfir nýjustu alþjóðlegu greiningarskilmerkin, klínískt mat og þær rannsóknir sem geta stutt við greiningu sjúkdómsins.

Jafnframt er fjallað um meðferð sýklasóttar hjá börnum. Þar kemur fram að snemmbær gjöf sýklalyfja, markviss vökvameðferð og önnur stuðningsmeðferð geti skipt sköpum fyrir horfur sjúklinga og aukið líkur á bata.

Markmið greinarinnar er að taka saman nýjustu vísindalegu þekkingu á þessu sviði og veita heilbrigðisstarfsfólki hagnýtar leiðbeiningar við greiningu og meðferð barna með sýklasótt. Höfundarnir leggja áherslu á að þekking á fyrstu einkennum og skjót viðbrögð geti haft afgerandi áhrif á lífslíkur og batahorfur barna sem greinast með sjúkdóminn.

Hægt er að lesa greinina í Læknablaðinu hér: Yfirlitsgrein. Börn með sýklasótt