Fara í efni
Fréttir

Glæsilegir vinningar í afmælisleik

Síðastliðinn sunnudag voru tvö ár síðan undirritaður endurvakti Akureyri.net sem frétta- og mannlífsmiðil. Af því tilefni verður ritstjórnin á Glerártorgi frá klukkan 13.00 til 15.00 í dag, laugardag.

Fjöldi fólks gerir sér alla jafna ferð í verslunarmiðstöðina á laugardögum. Svo verður án efa nú eins og venjan er þegar Lionsklúbbarnir á Akureyri og Eyjafjarðarsveit bjóða fólki ókeypis blóðsykursmælingu í samstarfi við Samtök sykursjúkra á Norðurlandi, og tilvalið verður að líta við á ritstjórninni í leiðinni!

  • Í tilefni tímamótanna bregður Akureyri.net á leik í samstarfi við tvö akureyrsk frumkvöðlafyrirtæki, Skógarböðin og Niceair.
  • Rekstur Akureyri.net er fjármagnaður með sölu auglýsinga, auk styrkja frá fyrirtækjum og einstaklingum. Margir sýna stuðning sinn þegar í verki með mánaðarlegu framlagi og stefnt er að því að fjölga í þeim hópi.
  • HÉR er hægt að skrá sig.
  • Nöfn allra sem styrkja miðilinn mánaðarlega nú þegar og þeirra sem bætast í hópinn verða í pottinum þegar dregið verður í afmælisleiknum 1. desember næstkomandi.

Þrír vinningar verða dregnir út:

  • Eitt gjafabréf fyrir tvo í Skógarböðin að verðmæti 11.980 kr.
  • Vetrarkort fyrir einn í Skógarböðin að verðmæti 75.990 kr.
  • Flug fyrir tvo með Niceair til einhvers áfangastaðar félagsins (og heim aftur!), að verðmæti u.þ.b. 150.000 til 250.000 kr. eftir áfangastað.

Vonandi líta sem flestir við á ritstjórninni í dag! Gaman væri að rabba við bæjarbúa og aðra lesendur.

Skapti Hallgrímsson
ritstjóri

  • SKÓGARBÖÐIN – Eitt gjafabréf fyrir tvo í Skógarböðin og vetrarkort fyrir einn.

  • NICEAIR – Flug fyrir tvo frá Akureyri til einhvers áfangastaðar Niceair. Og heim aftur, svo það fari ekki á milli mála!