Gæslan 100 ára – Þór og Gró á Akureyri
Varðskipið Þór, flaggskip Landhelgisgæslunnar, lagðist að Oddeyrarbryggju á Akureyri í gær og í morgun lenti björgunarþyrlan TF-GRÓ á bryggjunni, steinsnar frá skipinu. Heimsóknin tengist bæði málþingi um leit- og björgun á norðurslóðum sem verður í Háskólanum á Akureyri í dag frá kl. 13.00 til 17.00 – og er í beinu streymi hér á akureyri.net – og 100 ára afmæli Gæslunnar.
Í tilefni aldarafmælis Landhelgisgæslunnar verður opið „hús“ í varðskipinu á laugardag. „Íbúum á Akureyri og öðrum áhugasömum er boðið að koma um borð í skipið laugardaginn 18. apríl milli kl. 13:00 og 16:00. Við hvetjum sem flesta að koma um borð og kynna sér starfsemina sem þar fer fram,“ segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
Börn á miðstigi grunnskóla bæjarins fá forskot á sæluna; þau fá að fara um borð í skipið og skoða. Krakkar úr Brekkuskóla voru þar í morgun þegar akureyri.net leit við, og hópnum stóð einnig til boða að skoða þyrlun; hún vekur jafnan mikla athygli og svo var einnig nú.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra kom til Akureyrar með þyrlunni í morgun og skoðaði auk þess varðskipið. Hún er ein þeirra sem flytur á málþinginu sem nefnt var að ofan.






Dómsmálaráðherra með áhöfn þyrlunnar á Oddeyrarbryggju í morgun. Frá vinstri: Jökull Harðarson, spilmaður, Þórarinn Ingi Ingason, flugstjóri, Anton Örn Rúnarsson, sigmaður, Haukur Harðarson, flugmaður, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra, og Auðunn F. Kristinsson, framkvæmdastjóri hjá LHG






Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og Páll Geirdal skipherra.



