Fara í efni
Fréttir

Beint streymi – Leit og björgun á norðurslóðum

Björgunarþyrlan TF-Gná á Flugdegi Flugsafns Íslands fyrir nokkrum árum og varðskipið Þór – flaggskip Landhelgisgæslunnar – við Oddeyrarbryggju í gær. Opið „hús“ verður í skipinu á laugardaginn; þá gefst almenningi kostur á að skoða skipið frá kl. 13.00 til 16.00. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Varðberg, Norðurslóðanetið, Landhelgisgæsla Íslands, dómsmálaráðuneytið og Háskólinn á Akureyri bjóða til opins málþings í Háskólanum á Akureyri í dag, fimmtudaginn 16. apríl, frá kl. 13:00 til 17:00, þar sem sjónum verður beint að leit og björgun á norðurslóðum.

  • Beint streymi verður á akureyri.net frá málþinginu. Smellið á myndina hér að neðan til að fylgjast með.

„Leit og björgun á norðurslóðum er í hraðri þróun vegna aukinnar umferðar, breytts öryggisumhverfis og nýrrar tækni. Á þessu málþingi munu sérfræðingar ræða getu, samhæfingu og ábyrgð – og hvernig Ísland og samstarfsríki geta tryggt öryggi á einu af mest krefjandi svæðum heims,“ segir í tilkynningu um málþingið. 

Erindi halda Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra; Auðunn Friðrik Kristinsson, forstöðumaður aðgerðasviðs Landhelgisgæslu Íslands; Þorlákur Einarsson, sérfræðingur á skrifstofu alþjóðapólitískra málefna í utanríkisráðuneytinu; Antonio Rolla, verkefnastjóri hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, sem vinnur að gervihnattaleiðsögn, neyðarsamskiptum úr geimnum og tækniþróun í leit og björgun; Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu; Tore Hongset, samhæfingarstjóri leitar- og björgunaraðgerða hjá Sameiginlegu leitar- og björgunarstjórnstöðinni í Bodø Norður-Noregi; Guðbrandur Örn Arnarson, aðgerðasviði Slysavarnafélagsins Landsbjargar; Embla Eir Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Norðurslóðanets Íslands, og Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri.

  • NÁNARI UPPLÝSINGAR HÉR UM MÁLÞINGIÐ