Fara í efni
Fréttir

Fram lagði KA 4:3 í fjörugum leik

Birgir Baldvinsson um það bil að stýra knettinum í mark Framara í stöðunni 1:1. Elías Ingi Árnason dómari er hins vegar búinn að stinga upp í sig flautunni og dæmdi markið af. Ekki fékkst þó séð að nokkurt leikbrot hefði átt sér stað. Mynd: Ármann Hinrik.

Framarar fóru suður með öll þrjú stigin úr viðureign sinni við KA í efstu deild karla í kvöld. Leikið var á KA-vellinum (Greifavöllurinn sunnan við KA-heimilið – gervigras) í blíðskaparveðri og skoruðu gestirnir fjögur mörk gegn þremur frá KA. Leikurinn var hin besta skemmtun fyrir áhorfendur og mörkin hefðu hæglega getað orðið fleiri. Reyndar skoraði KA fjögur mörk eins og Fram en eitt þeirra var ranglega dæmt af.

Fjörið byrjaði strax því á 2. mínútu fengu Framarar dauðafæri þegar föst sending kom fyrir mark KA en Atla Þór Jónassyni mistókst að reka tána í boltann sirka sautján sentimetrum frá marklínu. Hann átti reyndar eftir að koma meira við sögu síðar í leiknum. Fyrsta markið kom á 6. mínútu þegar Sigurjón Rúnarsson skallaði boltann úr hornspyrnu í stöng og inn. Skallinn var reyndar laflaus og boltinn lengi á leiðinni, skoppaði einu sinni á leið sinni, en viðstaddir KA-menn frusu alveg og fylgdust með knettinum leka inn í markið.

Það tók KA ekki nema þrjár mínútur að jafna metin og það gerði Hallgrímur Mar Steingrímsson með föstu skoti úr vítateignum eftir að varnarmenn Fram töpuðu boltanum klaufalega. Fjörið hélt áfram og tveimur mínútum síðar náði Birgir Baldvinsson að koma boltanum í mark Framara af markteig eftir hornspyrnu en Elías Ingi Árnason dómari dæmdi aukaspyrnu. Líklega hefur hann talið að brotið hafi verið á Viktor Frey Sigurðssyni markverði Fram í aðdragandanum en það var reyndar samherji Viktors sem var að þvælast fyrir honum. Kolrangur dómur.

Viktor Freyr Sigurðsson markvörður Fram nær ekki að koma boltanum burtu og andartaki síðar barst knötturinn til Birgis Baldvinssonar sem kom honum í markið. Markið var dæmt af vegna leikbrots en vandséð er á hvað dæmt var. Myndir: Ármann Hinrik.

En á 17. mínútu skoraði KA aftur og það mark fékk að standa. Hallgrímur Mar sendi inn í teiginn frá vinstri og líklega hefur Diego Montiel náð að snerta boltann og trufla varnarmenn Fram. Sveinn Margeir Hauksson fékk boltann á markteig og var snöggur að afgreiða hann í netið. Áfram hélt fjörið á báða bóga og leikurinn hraður og skemmtilegur. Framarar jöfnuðu metin á 33. mínútu úr vítaspyrnu, sem dæmd var á Birgi Baldvinsson fyrir að brjóta á besta manni vallarins, Hornfirðingnum hraðskreiða Frey Sigurðssyni. Markið gerði Atli Þór og hann kom Fram síðan yfir á 42. mínútu eftir að Steinþór Már Auðunsson í marki KA hafði varið frá Frey eftir glæsilega sókn Framara. Boltinn hrökk til Atla Þórs sem potaði honum inn af stuttu færi. Milli marka Atla Þórs átti Hallgrímur Mar glæsilegt skot úr aukaspyrnu sem Viktor Freyr náði að blaka yfir samskeytin og Kennie Chopart Framari renndi boltanum naumlega framhjá KA-markinu úr vítateignum. 3:2 fyrir Fram í leikhléi í afskaplega fjörugum og viðburðaríkum leik.

Aukaspyrna Hallgríms Mars Steingrímssonar stefnir upp í markhornið og Viktor Freyr Sigurðsson markvörður Fram þurfti að taka á honum stóra sínum til að blaka boltanum yfir markið. Mynd: Ármann Hinrik.

Seinni hálfleikur var öllu rólegri en sá fyrri en þó langt frá því að vera viðburðasnauður. Atli Þór hefði getað innsiglað þrennuna á 54. mínútu þegar hann setti boltann yfir mark KA úr færi sem margfalt auðveldara hefði verið að skora úr. Freyr Sigurðsson kórónaði stórleik sinn með því að skora fjórða mark Fram af markteig, eftir að Róbert Hauksson hafði öslað upp hægri kantinn alveg upp að endamörkum og sent fyrir markið. Rétt á eftir var Kennie í góðu færi í vítateig KA en Steinþór Már varði glæsilega.

KA-menn minnkuðu muninn á 84. mínútu þegar þeir komust í snögga sókn og Jóan Símun Edmundsson fékk boltann á auðum sjó í vítateig Fram frá Hallgrími Mar og skoraði af öryggi.

Jóan Símun Edmundsson nýbúinn að hleypa af og andartaki síðar þandi boltinn netmöskvana á marki Fram. Mynd: Ármann Hinrik.

Það sem eftir lifði leiks náðu KA-menn ekki að ógna marki Framara að ráði og gestirnir hrósuðu nokkuð sanngjörnum 4:3 sigri. Framliðið lék mjög vel í dag, hraðan og skemmtilegan fótbolta og náðu oft að nýta sér veikleika í KA-liðinu. Að sama skapi gekk þeim vel að verjast sóknartilburðum KA, sem voru ekki eins beittir í sínum aðgerðum og gestirnir þrátt fyrir að vera meira með boltann.

Að 10 umferðum loknum situr KA í 9. sæti deildarinnar með 10 stig en stutt er í næstu lið fyrir ofan. Næsti leikur liðsins er útileikur gegn Breiðabliki næstkomandi sunnudag.

Leikskýrslan á vef KSÍ