Fara í efni
Fréttir

Fimm sækjast eftir embætti rektors HA

Eyjólfur Guðmundsson tók við embætti rektors 1. júlí 2014, en hann er í námsleyfi frá 1. ágúst til 31. desember á þessu ári og er Elín Díanna Gunnarsdóttir starfandi rektor í fjarveru hans. 

Fimm sóttu um embætti rektors Háskólans á Akureyri. Umsóknarfrestur rann út 23. nóvember og verður ráðið í embættið til fimm ára frá og með 1. júlí 2024. Starfandi rektor, Elín Díanna Gunnarsdóttir, sækist ekki eftir embættinu. Þetta kemur fram á vef skólans.

Eftirtalin sóttu um embættið:

  • Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Bates College, Lewiston, Maine
  • Dr. Brynjar Karlsson, forseti Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri
  • Dr. Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst
  • Dr. Sigríður Kristjánsdóttir, skipulagsfulltrúi
  • Dr. Sigurður Ragnarsson, lektor við Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri

Háskólaráð Háskólans á Akureyri tilnefnir rektor í samræmi við 8. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og 10. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 694/2022 og starfar rektor í umboði háskólaráðs. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra skipar rektor til fimm ára samkvæmt tilnefningu háskólaráðs. Á næstu dögum mun Háskólaráð tilnefna þrjá fulltrúa í valnefnd til að meta hæfi umsækjenda.

Síðsumars kom fram í fréttum að hafnar væru óformlegar viðræður um sameiningu Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst. Einn umsækjenda um embætti rektors er einmitt rektor Háskólans á Bifröst, dr. Margrét Jónsdóttir Njarðvík.