Fara í efni
Fréttir

Eyjafjarðarsveit: 35 vilja vera sveitarstjóri

Mynd: Þorgeir Baldursson

Alls bárust 35 umsóknir um starf sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit en umsóknarfrestur rann út í gær. Ákveðið var að afloknum sveitarstjórnarkosningum að auglýsa starfið laust til umsóknar, eftir að Finnur Yngvi Kristinsson fráfarandi sveitarstjóri óskaði ekki eftir endurráðningu. Á fyrsta fundi sveitarstjórnar í dag var Hermann Ingi Gunnarsson af F-lista endurkjörinn oddviti og honum falið umboð til að vinna að ráðningu sveitarstjóra, í góðu samráði við sveitarstjórnarfulltrúa. Nöfn umsækjendanna 35 verða ekki gefin upp opinberlega að svo stöddu en Hermann segir að nú verði farið í að vinna úr umsóknum.

Hermann sagðist í spjalli við akureyri.net vera ánægður með þennan mikla áhuga á starfinu. „Menn sjá þennan jákvæða og góða anda sem er í sveitarfélaginu, það er gott og eftirsóknarvert að vera hérna og sveitarfélagið vel rekið,“ segir Hermann. Hann tekur undir að það sé eiginlega hálfgert lúxusvandamál að velja aðeins einn úr þessum stóra hópi umsækjenda „en lífið er nú fullt af lúxusvandamálum,“ bætir hann kankvíslega við og kvíðir greinilega ekki því verkefni að finna rétta einstaklinginn í starfið.