Fara í efni
Fréttir

„Döpur og slegin“ yfir ákvörðun meirihlutans

Hilda Jana Gísladóttir, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Akureyrar, segist „döpur og slegin“ yfir því að meirihluti bæjarstjórnar hafi samþykkt að heimila SS Byggi að vinna áfram að deiliskipulagi við götuna Tónatröð í Innbænum í því skyni að reisa nokkur fjölbýlishús á lóðum sem eru ætlaðar undir einbýlishús samkvæmt núgildandi skipulagi.

Sex bæjarfulltrúar samþykktu tillögu skipulagsráðs í dag – þrír Sjálfstæðismenn, annar fulltrúi Framsóknarflokksins, annar fulltrúi L-listans og eini fulltrúi Miðflokksins. Á móti voru báðir Samfylkingarmennirnir, annar Framsóknarmaðurinn, annar fulltrúi L-listans og eini bæjarfulltrúi VG.

  • Smelltu hér til að lesa fréttina frá því fyrr í dag um bæjarstjórnarfundinn

Ekki góð stjórnsýsla

„Á bæjarstjórnarfundi Akureyrarbæjar í dag var á dagskrá ákaflega sérstakt skipulagsmál, sem samþykkt var með sex atkvæðum gegn fimm,“ skrifar Hilda Jana á Facebook.

„Til þess að gera mjög langa sögu stutta þá má segja að meirihluti bæjarstjórnar hafi samþykkt að úthluta einu verktakafyrirtæki fjölbýlishúsalóð án auglýsingar. Til þess að gera söguna aðeins lengri þá fólst ákvörðunin í því að heimila einu fyrirtæki að taka frá einbýlishúsalóðir við Tónatröð, með fyrirvara um að þeim verði breytt í fjölbýlishúsalóðir síðar. Umræddar lóðir hafa hins vegar aldrei verið auglýstar með þeim skilmálum að unnt sé að breyta þar skipulagi og enn er í gildi deiliskipulag sem gerir ráð fyrir einbýlishúsalóðum á svæðinu.“

Síðan segir Hilda Jana: „Á tíma núverandi bæjarstjórnar hafnaði skipulagsráð öðru fyrirtæki sem sóttist eftir mun umfangsminni breytingum á skipulagi á þessari sömu lóð á þeim forsendum að bygging fjölbýlishúsa á umræddum lóðum samræmdist ekki útliti og yfirbragði nærliggjandi byggðar. Það fyrirtæki hefur nú, skiljanlega, gert athugasemdir við að þeirra hugmyndum hafi verið hafnað en nú ætli sama bæjarstjórn að leyfa öðru fyrirtæki mun meiri uppbyggingu og það án auglýsingar. Það að tryggja jafnræði ætti að vera algjört grundvallaratriði í góðri stjórnsýslu hins opinbera, en því miður hefur bæjarstjórn nú kosið að fylgja ekki þeirri meginreglu. Ég er satt best að segja döpur og slegin yfir því að þetta hafi orðið niðurstaðan. Fyrirfram hefði ég ekki trúað því að meirihluti bæjarstjórnar væri sáttur við að starfa með þessum ósanngjarna hætti.“

Hilda Jana birti þessar tvær myndir með færslunni og skrifaði: „Að ofan hugmynd fyrirtækisins sem hafnað var og fyrir neðan hugmynd fyrirtækisins sem bæjarstjórn hefur nú ákveðið að heimila að taka frá umræddar einbýlishúsalóðir með fyrirvara um að þeim verði breytt í fjölbýlishúsalóðir.“