Fara í efni
Fréttir

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Akureyrarflugvöllur. Mynd: Þorgeir Baldursson

Ekki fylgt almennri verðlagsþróun

„Rökstuðningurinn fyrir þessari breytingu er tvíþættur. Annars vegar hafi kostnaður við Loftbrúna farið fram úr 600 milljóna króna framlagi þrjú ár í röð og hins vegar ýti hlutfallslegur afsláttur undir verðhækkanir í innanlandsflugi, enda aukist greiðslur ríkisins til flugfélagsins í réttu hlutfalli við verðhækkanir,“ skrifar Þóroddur.

Hann sýnir fram á að útgjöld vegna Loftbrúarinnar hafa aldrei verið hærri en upphaflegar fjárheimildir hennar að raungildi. „Sívaxandi útgjöld umfram fjárheimildir virðast eingöngu vera vegna þess að fjárheimildir hvers árs hafa ekki fylgt almennri verðlagsþróun. Skerðing á niðurgreiðslum vegna innanlandsflugs er ekki vegna þess að kostnaður við verkefnið hafi aukist umfram upphaflega áætlun heldur vegna þess að ríkið hyggst minnka umfang þess um fjórðung.“

Í grein Þórodds kemur fram að fjárheimildir ríkisins vegna Loftbrúarinnar hafi verið 600 milljónir á ári frá fyrsta heila starfsári verkefnisins, árið 2021. Miðað við verðlag ársins 2025 jafngildir það 779 milljónum árið 2021 en aðeins 572 milljónum árið 2026. „Útgjöld vegna Loftbrúarinnar hækkuðu vissulega upp í 741 milljón króna á föstu verðlagi fram til ársins 2024 en stóðu nánast í stað árið 2025. Ef fjárheimildir vegna Loftbrúarinnar hefðu fylgt verðlagsþróun hefðu þær hins vegar verið 779 milljónir króna árið 2025 eða 39 milljónum umfram raunverulega nýtingu,“ segir hann.

Mynd 1. Fjárheimildir og útgjöld vegna Loftbrúarinnar, 2021–2026
Þóroddur segir meðal annars: „Í fjárlögum ársins 2025 lagði ríkið um 150 milljarða króna til Landspítalans, háskólanna í Reykjavík og helstu menningarstofnana ríkisins í borginni. Loftbrúin kostar um 0,49% af þeirri upphæð en auðveldar þeim 16% þjóðarinnar sem fjærst búa Austurvelli aðgengi að þessari sameiginlegu starfsemi þjóðarinnar. Um 62 þúsund íbúar eiga rétt á Loftbrú og kostnaður ríkisins árið 2025 nam því um 12 þúsund krónum á hvern íbúa, eða um 1.000 krónum á mánuði.“
Þóroddur bendir á að að víða um heim hafi verið sett á laggirnar kerfi til að tryggja flugsamgöngur við dreifðari byggðir með niðurgreiðslum, „svo sem stuðningskerfi við nauðsynlega flugþjónustu í Bandaríkjunum og skyldu til almannaþjónustu í Evrópusambandinu. Jafnframt hefur í auknum mæli verið reynt að stuðla að aukinni samkeppni á flugmarkaði dreifbýlla svæða með því að endurgreiða flugfarþegum hluta fargjaldanna í stað ríkisstuðnings við tilteknar flugleiðir. Rannsóknir hafa sýnt að slíkar aðgerðir leiða almennt til fleiri flugferða, aukins sætaframboðs og jákvæðra efnahagslegra áhrifa.“

  • Grein Þórodds Bjarnasonar:

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?