Fara í efni
Fréttir

Blóðtæmingarlausnin vekur athygli erlendis

Páll Kristjánsson, framkvæmdastjóri Slippsins Akureyri. Mynd: Slippurinn.

Vinnslulausnir frá Slippnum á Akureyri, þar á meðal blæðingar- og þvottalausn sem heitir Sæljónið, vöktu mikla athygli á sjávarútvegssýningunni í Barcelona sem haldin var í lok apríl. Slippurinn kynnti starfsemi sína, þjónustu og framleiðslu, á Seafood Processing Global sýningunni í Barcelona. Sýningin er alþjóðleg og er vettvangur alls hins besta og framsæknasta í heiminum sem sjávarútvegsfyrirtæki og aðilar í greininni hafa upp á að bjóða.

„Við fengum kærkomið tækifæri til að hitta núverandi og væntanlega viðskiptavini og skiptast á skoðunum og hugmyndum. Mikinn áhuga var að finna frá innlendum og erlendum útgerðum á vörum okkar og þjónustu en Slippurinn byggir á sterkum grunni og er afar vel staðsettur í miðju Norður-Atlantshafinu. Við erum með stór og spennandi áform um að vaxa innan greinarinnar og framtíðin er sannarlega björt,“ segir Páll Kristjánsson, framkvæmdastjóri Slippsins.


Sæljónið, blæðingar- og þvottalausn frá Slippnum, teikning og raunveruleiki. Búnaðurinn vakti mikla athygli í Barcelona. Myndir: Slippurinn.

Fram kemur í frétt frá Slippnum að fjölmargir hafi heimsótt bás fyrirtækisins og hafi sýnt mikinn áhuga á vörum og þjónustu fyrirtækisins. Starfsemi Slippsins og þjónusta spannar vítt svið fyrir skipaþjónustu, vinnslubúnað og fiskeldi. Sæljónið, sem er blæðingar- og þvottalausn frá Slippnum, vakti verðskuldaða athygli á sýningunni en það tryggir blóðtæmingu eins og best verður á kosið og framúrskarandi aflameðferð.

Vörulína Slippsins hefur stækkað verulega undafarið og ber þar helst að nefna heildarlausnir í saltfiskvinnslu, hrognavinnslu, sjálfvirkum fiskikerakerfum og í vigtun á afla svo fátt eitt sé nefnt.


Fjölmargir lögðu leið sína í bás Slippsins á sjávarútvegssýningunni í Barcelona og vakti vinnslulausn fyrirtækisins verðskuldaða athygli. Myndir: Slippurinn.