Birta og Salka eru fyrir fólk á öllum aldri
„Hvað er Birta og Salka?“ Þessa spurningu fékk ég fyrir stuttu og miðað við það fjölbreytta og öfluga starf sem þar fer fram finnst mér að sem flest á Akureyri og í nágrenni ættu að vita svarið.
Þannig hefst grein Valdísar Rutar Jósavinsdóttur, umsjónarmanns Birtu og Sölku – félagsmiðstöðva fólksins, sem akureyri.net birti í gær. Tilefnið eru fundir á morgun þar sem vetrarstarfið verður kynnt. Fundur verður þá haldinn á báðum stöðum:
- Birta, Bugðusíðu 1 – kl. 10:30–11:30
- Salka, Víðilundi 22 – kl. 13:30–14:30
Fyrir fólk á öllum aldri
Margir gera ráð fyrir að félagsmiðstöðvarnar tvær séu einungis fyrir 67 ára og eldri en svo er alls ekki. Misskilningin má hugsanlega rekja til þess að Salka er í Víðilundi 22, byggingu sem tengir Bleikt og blátt eins og húsin eru gjarnan kölluð, og Birta er í Bugðusíðu 1 þar sem Félag eldri borgara er einnig til húsa.
Valdís Rut segir í greininni:
„Ég kynntist sjálf félagsmiðstöðvunum fyrir rétt tæpum tveimur árum þegar ég tók við sem umsjónarmaður Birtu og Sölku. Fram að því hélt ég að þetta væru einfaldlega staðir fyrir fólk 67 ára og eldra til að koma saman, sinna handverki, prjóna, smíða og mála – og jú, kannski borða saman. Ég vissi sem sagt álíka mikið og sá sem spurði mig þessarar spurningar um daginn.“
Valdís heldur áfram: „Það fyrsta sem kom mér á óvart var að Birta og Salka eru fyrir öll 18 ára og eldri. Öll eru velkomin. Birta og Salka eru nefnilega fyrst og fremst samfélagshús þar sem lögð er áhersla á að skapa lifandi og hlýlegt samfélag. Þar á að vera gott að koma og öll eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.“
Ótrúlega fjölbreytt starf
Fjölbreytnin kom Valdísi á óvart; fjölda námskeiða segir hún ótrúlegan, margvíslegir viðburðir eru í boði, fræðsla, hreyfing, spilin „og allt hitt sem fyllir húsin af lífi. Hvern hefði órað fyrir því að það mætti einfaldlega mæta, taka þátt, vera með og tilheyra? Allavega ekki mig.“
Svo má koma og fá sér morgunkaffi, fletta blöðunum og ræða málefni líðandi stundar. Setjast niður með öðrum yfir hádegismat, rifja upp gamla tíma eða spjalla yfir kökusneið seinnipartinn.
„En það sem skiptir kannski mestu máli er að í Birtu og Sölku má líka bara koma og vera,“ segir Valdís. „Ég má sitja hljóð og hlusta – og tilheyra. Ég má tala meira og hlæja hátt – og tilheyra líka. Þarna er samfélag þar sem fólk skiptir máli. Ég skipti máli – og þú skiptir máli.“
- Grein Valdísar Rutar Jósavinsdóttur:
Birta og Salka – fyrir okkur öll
Frábær umfjöllun Rakelar
um fólkið og starfsemina
Rakel Hinriksdóttir blaðamaður heimsótti Sölku, félagsmiðstöð fólksins í Víðilundi, á síðasta ári og komst að því að þar leiðist sannarlega engum! Nokkrar stórskemmtilegar og fróðlegar greinar Rakelar birtust á akureyri.net í apríl í fyrra og full ástæða er til að vekja athygli á þeim aftur núna, í tengslum við kynningu vetrarstarfsins þar og í Birtu við Bugðusíðu. Kynningin verður á morgun sem fyrr segir.

Kristín Ólafsdóttir var ein viðmælenda akureyri.net á síðasta ári. Í forgrunni eru kolkrabbar sem hún hefur heklað og áttu að fara til framhaldslífs á fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri. Myndir með viðtali: Rakel Hinriksdóttir
Hér eru hlekkir á greinar Rakelar um starfsemina í Sölku. Smellið á rauða letrið til að lesa viðkomandi grein:
