Fara í efni
Fréttir

Besta deild karla: KA heima, Þór úti

KA-maðurinn Kári Gautason og Þórsarinn Ágúst Eðvald Hlynsson. Mynd: Ármann Hinrik.

Áttunda umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu hófst í gær og verður kláruð í dag með fimm leikjum. Þar á meðal eru leikir Akureyrarliðanna, heimaleikur hjá KA og útileikur hjá Þór.

KA tekur á móti Val í 8. umferð Bestu deildar karla í dag. KA hefur klifrað upp töfluna með þremur sigrum í röð og situr nú í 6. sæti Bestu deildar karla með tíu stig að loknum sjö umferðum. KA vann FH á útivelli í síðustu umferð, en hafði þar á undan unnið ÍBV á heimavelli og Þór á útivelli. Áður hafði liðið náð sér í eitt stig í fyrstu fjórum umferðunum.

  • Besta deild karla í knattspyrnu,
    8. umferð
    KA-völlur (Greifavöllurinn sunnan við KA-heimilið – gervigras), kl. 18
    KA - Valur

Valur vann Breiðablik 3-2 á heimavelli í 7. umferðinni og er sætinu ofar en KA með 12 stig.

- - -

Þórsarar sækja Keflvíkinga heim í dag í 8. umferð Bestu deildar karla. Eftir fjögur töp í röð hefur liðið sigið niður töfluna og er nú í 10. sætinu með sex stig að loknum sjö umferðum. Keflvíkingar eru þremur sætum ofar með átta stig, en þau hafa öll komið í síðustu fimm leikjum liðsins eftir að Keflvíkingar töpuðu tveimur fyrstu leikjum sínum í vor.

  • Besta deild karla í knattspyrnu,
    8. umferð
    HS Orku-völlurinn í Keflavík kl. 18
    Keflavík - Þór

Keflvíkingar gerðu 1-1 jafntefli við Stjörnuna í síðustu umferð á meðan Þór tapaði heima, 1-2, fyrir Skagamönnum.