Fara í efni
Fréttir

Bandarískur framherji til liðs við Þór/KA

Þór/KA hefur samið við bandarísku knattspyrnukonuna Shaina Ashouri og hefur hún fengið leikheimild með liðinu. Ashouri, sem er framherji, er fædd 1996.

Á heimasíðu Þórs segir: „Shaina er frá Parker í Colorado, en stundaði nám í Wyoming-háskóla og spilaði þar með liði Wyoming Cowgirls. Hún samdi við Houston Dash í bandarísku MLS-deildinni haustið 2020 og hefur spilað með varaliði félagsins. Eftir tímabilið 2020 fór hún einnig til Króatíu og var þar samherji fyrrum leikmanns Þórs/KA, markvarðarins Stephanie Bukovec, í ZNK Split, og á því að baki leiki í Meistaradeild Evrópu.“

Aðspurð um knattspyrnuferilinn segist hún hafa byrjað að æfa heima í Colorado þegar hún var þriggja ára. „Ég kem úr mikilli fótboltaáhugafjölskyldu svo það var eiginlega skrifað í stjörnurnar að ég myndi velja fótboltann mjög ung og halda mig við hann,“ segir Shaina. Hún ákvað að koma til Íslands eftir að hafa ráðfært sig við leikmenn sem hún þekkir og kveðst hafa heyrt að deildin hér væri sterk. „Ég hef alltaf heyrt vel talað um landið og deildina hér,“ segir Shaina Ashouri.

  • Næsti leikur Þórs/KA er á morgun þegar Íslandsmeistarar Breiðabliks koma í heimsókn.