Fréttir
Körfubolti: Þór tekur á móti Breiðabliki
15.10.2026 kl. 15:20
Axel Arnarsson í fyrsta deildarleik liðsins í haust, gegn Þór úr Þorlákshöfn. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.
Karlalið Þórs í körfubolta tekur á móti liði Breiðabliks í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld kl. 19:15.
Þórsarar voru hársbreidd frá því að vinna Hamar í Hveragerði í annarri umferðinni í kaflaskiptum leik þar sem þeir höfðu yfirhöndina í fyrri hálfleiknum, en eins stigs sigur datt hinum megin þegar upp var staðið. Þórsarar eru því án sigurs eftir fyrstu tvær umferðirnar.
Næstu mótherjar eru úr Kópavoginum, Breiðablik kemur norður með sitt lið í kvöld. Blikar hafa unnið einn og tapað einum leik. Þórsarar fá ekki langa hvíld á milli leikja því strax á laugardag er komið að bikarleik í 32 liða úrslitum þar sem þeir taka á móti Sindra frá Hornafirði.
- Körfubolti
1. deild karla, 3. umferð
Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19:15
Þór - Breiðablik