Fara í efni
Fréttir

Ásgeir sérfræðingur við geðdeild SAk

Ásgeir Bragason hefur verið ráðinn sérfræðingur í geðlækningum við geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri (SAk). Í tilkynningu frá stofnuninni  segir að hann hafi komið að því að setja deildina á stofn á sínum tíma en hafi í áratugi starfað sem sérfræðingur í Noregi.

„Það er tilhlökkunarefni fyrir mig að koma aftur til Akureyrar, þar sem ég átti minnisverðan og lærdómsríkan tíma fyrir réttum 40 árum, þegar ég var með í því að setja á stofn deildina sem ég núna mun vinna við,“ segir Ásgeir á vef SAk.

Ásgeir lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1978 og hóf í kjölfarið nám í læknisfræði við Háskóla Íslands, þaðan sem hann útskrifaðist árið 1984. Að loknu kandídatsári starfaði hann sem aðstoðarlæknir á geðdeild Borgarspítalans.

Árið 1986 hóf hann störf sem fyrsti aðstoðarlæknir á nýrri geðdeild við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Rúmu ári síðar flutti hann ásamt fjölskyldu sinni til Noregs þar sem hann starfaði meðal annars við Ullevål-sjúkrahúsið í Ósló, Blakstad-sjúkrahúsið í Asker og Statens Senter for Epilepsi í Sandvika. Hann lauk sérfræðiviðurkenningu í geðlækningum árið 1992.

Eftir að Ásgeir varð sérfræðingur starfaði hann um árabil við öldrunargeðdeildir í Noregi, fyrst á Blakstad-sjúkrahúsinu og síðar á Søndre Borgen í Asker þar sem hann gegndi stöðu yfirlæknis í nær áratug. Að því loknu tók hann þátt í uppbyggingu göngudeildar í Ósló áður en hann hóf störf á Diakonhjemmet sykehus í Ósló, þar sem hann hefur síðustu 20 ár sinnt samráðsgeðlækningum.

Ásgeir hefur jafnframt verið virkur í starfi norska geðlæknafélagsins um áratugaskeið, meðal annars innan öldrunargeðlækninga og samráðsgeðlækninga. Sérsvið hans eru öldrunargeðlækningar og samráðsgeðlækningar.