Fara í efni
Fréttir

Almenningi boðið að skoða innilaugina

Eftir tveggja ára framkvæmdartíma hefur innilaugin í Sundlaug Akureyrar fengið á sig nútímalegri svip. Mynd: akureyri.is

Innilaugin í Sundlaug Akureyrar hefur verið tekin í notkun eftir gagngerar endurbætur. Á morgun, laugardag, stendur almenningi til boða að  skoða breytingarnar en laugin verður lokuð sundgestum á meðan.

Engin formleg vígsla verður á lauginni en samkvæmt upplýsingum frá forstöðumanni sundlauga Akureyrar, Gísla Rúnari Gylfasyni, verður almenningi boðið að koma og skoða laugina á laugardag milli kl. 14 og 16. Léttar veitingar verða í boði en engin formleg dagskrá. Eftir það verður laugin opin almenningi um helgar en verður annars nýtt sem þjálfunarlaug fyrir ýmsa hópa.

Eins og akureyri.net hefur áður greint frá hafa endurbætur á innilauginni staðið yfir síðan 2024 með tilheyrandi tilfærslum á starfsemi hússins. Meðal breytinga á húsnæðinu er að nú eru komnir stórir gluggar sem vísa að andapollinum, rampur og yfirfljótanlegir bakkar sem gerir laugina aðgengilegri.