Alfreð heiðraður af forseta Íslands
Akureyringurinn Alfreð Gíslason, fyrrverandi leikmaður og þjálfari KA og nú landsliðsþjálfari Þýskalands í handbolta, hlaut í gær heiðursviðurkenningu Útflutningsverðlauna forseta Íslands 2026 „fyrir einstakan árangur á alþjóðavettvangi og fyrir að hafa verið brautryðjandi íslenskra handknattleiksþjálfara erlendis,“ eins og það er orðað á vef Íslandsstofu, sem stendur að verðlaunaveitingunni. Við sama tækifæri fékk fyrirtækið Bláa lónið Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2026.
Eftir farsælan feril sem leikmaður með KA, KR, TUSEM Essen í Þýskalandi og spænska liðinu Bidasoa, hefur Alfreð lengi verið þjálfari í fremstu röð; hefur í raun náð ótrúlegum árangri á þeim vettvangi. Nánar um það neðar í fréttinni.

ALFREÐ OG FJÖLSKYLDA Á BESSASTÖÐUM
Glaður hópur á Bessastöðum í gær. Frá vinstri: Árni Sigurjónsson formaður stjórnar Íslandsstofu, Sif Sigurjónsdóttir, Halla Tómasdóttir forseti Íslands, Rán Sigurjónsdóttir, Kara Elfarsdóttir standandi milli forsetans og Aðalheiðar Alfreðsdóttur ömmu sinnar, móður Alfreðs, Hrund Gunnsteinsdóttir kærasta Alfreðs, Alfreð Gíslason, Karítas Elfarsdóttir, Elfar Alfreðsson, Herdís Elfarsdóttir, Eiður Elfarsson, Andri Grétar Alfreðsson og Andrea Eiðsdóttir. Sif og Rán eru dætur Hrundar, kærustu Alfreð.
„Ferill Alfreðs ber vott um einstaka fagmennsku, leiðtogahæfni og árangur,“ segir í tilkynningu Íslandsstofu um viðurkenninguna. „Áhrif hans verða þó ekki aðeins metin í titlum og verðlaunapeningum. Með löngum og farsælum ferli erlendis hefur hann verið brautryðjandi fyrir íslenska þjálfara og átt þátt í að opna þeim leið að stærri verkefnum hjá félagsliðum og landsliðum víða um heim.“
Glæsilegur ferill
- Alfreð er fæddur á Akureyri árið 1959 og hóf ferilinn með KA. Hann lék síðar með KR og varð bikarmeistari en hélt til Þýskalands 1983 og hóf að leika með TUSEM Essen.
- Alfreð varð tvisvar Þýskalandsmeistari og einu sinni bikarmeistari á þeim fimm árum sem hann var í herbúðum TUSEM, lék að því loknu einn vetur með KR á ný en var síðan í tvö ár á mála hjá spænska liðinu Bidasoa og varð bikarmeistari þar í landi fyrri veturinn.
- Alfreð var lykilmaður í landsliði Íslands um árabil og var kjörinn íþróttamaður ársins á Íslandi 1989. Hann var útnefndur í Heiðurshöll ÍSÍ (Íþrótta- og ólympíusambands Íslands) í desember 2019.

Alfreð sýnir móður sinni, Aðalheiði Alfreðsdóttur, viðurkenningarskjalið á Bessastöðum í gær.
- Árið 1991 flutti fjölskyldan heim til Akureyrar; Alfreð, eiginkonan Kara Guðrún Melstað heitin, sonurinn Elfar og dóttirin Aðalheiður, og Alfreð hóf þjálfaraferilinn hjá KA auk þess að leika með liðinu. Eftir að KA varð bikarmeistari í fyrsta sinn 1995 lagði Alfreð keppnisskóna á hilluna en þjálfaði liðið áfram næstu tvö ár, KA-menn urðu aftur aftur bikarmeistarar 1996 og loks Íslandsmeistarar í fyrsta sinn 1997.
- Sumarið 1997 tók Alfreð við þjálfun þýska liðsins VfL Hameln en að loknum tveimur árum þar var hann ráðinn þjálfari SC Magdeburg.
- Magdeburg naut starfskrafta Alfreðs í sjö ár. Liðið varð Þýskalandsmeistari í fyrsta sinn 2001 og fagnaði sama vetur einnig sigri í Evrópudeild EHF (næst sterkustu Evrópukeppni félagsliða). Vorið 2002 náðu Alfreð og lærisveinar hans í Magdeburg svo þeim langþráða áfanga að vinna Meistaradeild Evrópu.
- Alfreð tók við þjálfun VfL Gummersbach 2006 og var með liðið í tvö ár, samhliða því að stýra íslenska landsliðinu í heimsmeistarakeppninni 2007 og í Evrópukeppninni 2008.
- Sumarið 2008 var Alfreð ráðinn þjálfari THW Kiel. Þegar hann lauk störfum þar, 11 leiktíðum síðar, hafði liðið orðið Þýskalandsmeistari sex sinnum, jafn oft þýskur bikarmeistari og tvisvar unnið Meistaradeild Evrópu.
- Vert er að geta þess að veturinn 2011 til 2012 náðu Alfreð og lærisveinar hans í THW Kiel einstökum árangri. Liðið vann alla bikara sem það keppti um, varð m.a. Evrópumeistari, þýskur bikarmeistari og Þýskalandsmeistari með fullu húsa stiga; liðið vann alla deildarleiki þann vetur sem var einsdæmi í sögu þýskra atvinnuíþrótta og er enn eftir því sem næst verður komist.
- Frá árinu 2020 hefur Alfreð stýrt þýska landsliðinu og náð eftirtektarverðum árangri. Liðið varð í öðru sæti og hlaut því silfurverðlaun á Ólympíuleikunum 2024 og fékk einnig silfur á Evrópumeistaramótinu fyrr á þessu ári.
Bláa lónið
Fyrirtækið Bláa lónið hlaut Útflutningsverðlaun forseta Íslands í gær eins og fram kom í upphafi, „fyrir framúrskarandi árangur við uppbyggingu alþjóðlegs vörumerkis, verðmætasköpun og þróun starfsemi á sviði ferðaþjónustu, vellíðunar og húðvara,“ segir í tilkynningu Íslandsstofu.
Þar segir ennfremur: „Fyrirtækið hefur um árabil verið eitt þekktasta íslenska vörumerkið á alþjóðavettvangi og átt mikilvægan þátt í því að byggja upp ímynd Íslands sem áfangastaðar.
Frá stofnun fyrirtækisins árið 1992 hefur Bláa Lónið vaxið úr heilsulind við Svartsengi í fjölþætt fyrirtæki þar sem ferðaþjónusta, hótel- og veitingarekstur, rannsóknir, húðvörur og heilsutengd þjónusta fara saman.“

Árni Sigurjónsson formaður stjórnar Íslandsstofu, Grímur Sæmundsen stofnandi og stjórnarformaður Bláa lónsins, Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri fyrirtækisins, Halla Tómsdóttir forseti Íslands og Alfreð Gíslason.
ÚTFLUTNINGSVERÐLAUN FORSETA ÍSLANDS
„Útflutningsverðlaun forseta Íslands eru veitt til að vekja athygli á þjóðhagslegu mikilvægi gjaldeyrisöflunar og heiðra fyrirtæki sem hafa skarað fram úr í alþjóðlegri sölu og markaðssetningu á íslenskum vörum og þjónustu,“ segir á vef Íslandsstofu.
Verðlaunin eru nú veitt í 38. sinn en þau voru fyrst afhent árið 1989. Meðal fyrri verðlaunahafa eru Icelandair, Íslensk erfðagreining, Truenorth og Kerecis, Embla Medical hlaut verðlaunin árið 2025.
Í úthlutunarnefndinni sátu Sif Gunnarsdóttir frá embætti forseta Íslands, Magnús Þór Torfason, frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, Katrín Olga Jóhannesdóttir frá Viðskiptaráði, Þórunn Sveinbjörnsdóttir frá Alþýðusambandi Íslands og Árni Sigurjónsson frá Íslandsstofu, en Íslandsstofa ber ábyrgð á kostnaði og framkvæmd við verðlaunaveitinguna.